|
Könnun
Best af slæmu
Kýld/ur í magann
1 atkvæði
Kýld/ur í gagnaugað
0 atkvæði
Kýld/ur í klobbann
0 atkvæði
Kýld/ur í kobbann
1 atkvæði
Kýld/ur í nefið
0 atkvæði
Kýld/ur í eyrað
0 atkvæði
Kýld/ur í rasskinnina
3 atkvæði
Kýld/ur í handakrikann
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 6
|
09.07.2009 09:38:14 / gráman
Jæja... Sumarið er svo sannarlega komið... Og ég er á morgun búinn að vera í fríi í tvær vikur... Finnst þetta líða alltof hratt...! Við Katrine erum búin að þvælast um Jótland, byrjuðum á að fara í vígsluveislu á nýju hesthúsi hjá vinafólki uppí Norður Jótlandi á laugardaginn fyrir tveimur vikum. Það var hörkustuð... Sátum föst á hraðbrautinni í tæpa tvo tíma...! Það er stórlega ofmetið!!! Sérstaklega í 27° hita! Við kunnum svo vel við okkur þarna uppfrá að við framlengdum dvölina fram á þriðjudag í síðustu viku. Flökkuðum um, keyrðum upp til Råbjerg mile, sem er sandalda sem færir sig um einhverja metra á ári, bara eftir því sem henni langar... Það var mjög flott... Þaðan keyrðum við svo upp til Skagen, nyrsta bæjar Danmerkur og gengum út á Grenen, sem er nyrsti oddi Danmerkur. Það var mjög skemmtileg upplifun. Milljón túristar allir að reyna að standa á sama staðnum til að geta sagt ,,Júhú, ég er á nyrsta odda Danmerkur!" En þessi oddi er virkilega bara oddur, mjög takmarkað pláss. Skagen er mjög flottur bær, föttuðum það á leiðinni til baka að við tókum ekki eina einustu mynd þar. Vúbbs.... Annars eyddum við góðum tíma á hverjum degi á ströndinni... Ekki á hverjum degi að maður baðar sig í ííííísköldu Atlandshafinu! KRÆST það var kalt að skella sér út í! Katrine var búin að ná sér í smá tan á sólbaðsstofum Horsens svo hún var búin að hita upp og tók lit alveg ótrúlega hratt á meðan ég mátti bara ganga í gegnum þennan sársaukafulla feril að brenna aðeins hér og þar áður en ég varð brúnn... Ái.... Á þriðjudeginum máttum við koma okkur til Horsens big city svo að Katrine kæmist í vinnuna daginn eftir... Á miðvikudaginn lét ég svo rífa úr mér endajaxl og á fimmtudaginn fór ég í lokapartí hjá bekknum. Það var mikið stuð, bjór og fótbolti. Svo ákváðum við að taka langa helgi hjá tengdó í Hadsten. Þá fyrst fór að hitna í kolunum... 34-36°stiga hiti bæði föstudag og laugardag...Og að sjálfsögðu fórum við á ströndina. Í þetta skiptið fórum við á Austurströndina.... Þar var vatnið heitt... Hundarnir sem tengdó eiga, Pila (íslenskur fjárhundur) og Freja (labrador) fengu að koma með til að kæla sig niður. Þessi grey voru að upplifa það að synda í fyrsta skiptið... Fjárhundurinn hagaði sér strax einsog kafbátur og sigldi lotningarfull um, bara með trýnið og augun uppúr vatni. Ekki málið hugsaði hún. Labradorinn, sem einsog allir vita eiga að vera miklir vatnahundar, var meiri veimiltítan. Um leið og hún gat ekki botnað fór hún í algert paník og byrjaði að ýlfra og synti á harðarspani til okkar Katrine og reyndi að príla uppí fangið á okkur. Það var vont... ÁI! Klóraði sig hreinlega upp magan á mér... Ekkert smá fyndin sjón... Hún vann samt mikinn sigur á ótta sínum um leið og við fundum prik sem við gátum hent útí... Þá pældi hún ekkert í að hún gæti ekki náð botninum... (Botninum náð??? hehe) Á sunnudaginn máttum við aftur druslast til Horsens svo Katrine gæti klárað síðustu fjóra vinnudagana sína. En hún er einmitt í vinnunni í síðasta skiptið í dag. Hún hættir núna, eða byrjar í sumarfríi og eftir sumarfríið hættir hún. Svo 21.ágúst byrjar hún í kennaraháskólanum í Árósum. Á þriðjudaginn vorum við svo boðin í mat til einhverrar fínna hjóna í Uldum, ekki langt frá Horsens. Það var mjög huggó og það munaði ekki miklu að ég hefði komið til baka einum Séfferhundi ríkari.... Síðan við komum heim frá Hadsten hef ég verið sannkallaður bústólpi og það finnst ekki blettur í húsinu þar sem ég hef ekki verið með klút eða ryksugu...! Ég hennti upp svona fínni IKEA hyllu og fyllti hana af bókum á meðan Katrine var í vinnunni, svo þegar Katrine kom heim ætlaði ég að sýna henni hvað ég hefði verið duglegur og viti menn... Hyllan hékk rétt svo upp á veggnum... Kom í ljós að hyllan getur max borið 5kg... Vúbbs... svo núna er ég með 4 ljót göt í veggnum mínum... Vúbbs.... Núna þegar Katrine kemur heim úr vinnunni ætlum við að taka túr upp til Árósa, kíkja í IKEA og svo kíkjum við líka á íbúðir í leiðinni, en við ætlum að flytja þarna uppeftir eftir áramót. Svo ætlum við til að fagna því að vera bæði komin í sumarfrí að fara út að borða við ánna í Árósum. Það er bara huggó!! Ég ætla ekki að hafa þetta lengra... vona að ég hafi ekki drekkt ykkur, þeim fáu sem kíkja hingað enn...
Hafið það sem allra best
K.kv. Geir Ármann
»
27.05.2009 06:48:08 / gráman
Einsog hefur ekki farið framhjá íslendingum, nær eða fjær hefur orðið ,,Sæll...!" náð gífurlegum vinsældum. Hérna í Danmörku hefur orðið ,,Dæææll...!" náð meiri vinsældum. Ekki afþví að við í baunalandi eigum erfitt með að segja -s, heldur vegna þess að Jakob Snorri, litli snillingurinn þeirra Rúnars og Gullu, hermir svona eftirminnilega eftir Ólafi úr Nætur-/Dagvaktinni þegar hann segir.... ,,DÆÆÆÆLL...!!!" og það besta er að hann geymir þetta þangað til á akkúrat réttum augnablikum og segir þetta mjög hneykslaður á svip... Mamman reynir að troða uppí hann hafragrautnum, og kauði bregst illur við.... ,,DÆÆÆÆÆLL MAMMA!"... Flottur!
Annað að frétta... Steikjandi hiti og sól... Ég upplifði í fyrsta skipti á æfi minni að það var svo gott veður á afmælisdeginum mínum að ég var á stuttbuxum og bol.... NICE! Man þegar ég varð 17 og við guttarnir vorum úti að spila fótbolta í snjókomu!! NUUUUTTSS!!! Mér hlýnar mikið við að kíkja á vefmyndavélina hjá MA og sjá hvað það er allt grátt og skítugt þarna á meðan það er grænt og huggó hér... Alls ekki til að gera ykkur öfundsjúk... En sumir bændur eru byrjaðir að heyja...! NUUUTTS!!
Hérna kemur samt stór mínus við þetta góða veður og DK... Ég er í skólanum þangað til 29.júní!! Flott... FRÁBÆRT....! NAAAT!! Núna er t.d. svaka hlýtt úti, fjölskyldur á leiðinni á ströndina eða í fjölskyldugarða... Ég í skólanum... ekki að læra... amk ekki núna...
Þetta átti bara að vera smá stutt héðan úr Danaveldi... blogga vonandi fyrr en seinna.... þetta blogg var fyrir Óla...!
Lifið heil
-GÁG-
»
30.03.2009 10:37:00 / gráman
Hádegismatur.... - Rúgbrauð með smjöri og ost
- Rúgbrauð með livrakæfu
- Rúgbrauð með hambóhrygg og papriku
- Einn brúnn banani
- Ekki kók heldur kolsýrt vatn með sítrónubragði
Já... Roooop... takk fyrir mig... Núna er hádegi og ég er ótrúlega lélegur að finna eitthvað að gera. Svo afhverju ekki að nota tímann til að skrifa nokkrar línur fyrir ykkur hérna inni. Kíkti inná vefmyndavélina hjá MA og sá að það er bara magnað veður á Akureyri. Ekki til að gera ykkur öfundsjúk eða neitt, en það er sól og 12° hiti hérna hjá okkur í áttunda stærsta bæ Danmerkur. Og veðurspáin fyrir vikuna er ekki slæm. Allt upp að fjórtán stig takk fyrir. Jæja, slæmt að eyða of miklum kröftum í að tala um veðrið. Á miðvikudaginn erum við að fara í evaluering eða mat. Þar sem verkefnið okkar er metið. Það verður að öllum líkindum fínt. Er samt ekki alveg sáttur með einn úr hópnum sem á voðalega bágt með að mæta. Í gær fékk ég svo sms frá kærustunni hans sem sagði að hann kæmi ekki í skólann í dag því hann væri svo slappur.... Hold on... hættu nú... Ætli það hafi verið keyrt yfir puttana á gutta... Bara svona fyrst hann ekki getur skrifað sjálfur.... Eitthvað segir mér að uppsafnað samviskubit sé farið að hindra gutta í að koma í skólann... Einsog staðan er núna þá segi ég að það séu 65% líkur á að hann hætti áður en apríl er búinn. Talandi um apríl.... 30.apríl og talan 24 nálgast óðfluga... Óskalistinn er einfaldur... peningar fyrir tannlæknakostnaði!!! Var hjá tannfræðingi um daginn, svona kona sem kíkir í munninn á manni og segir manni hvort maður sé með holur eða ekki.... Við getum sagt að hún hafi fundið holur... Hún reyndi að orða þetta pent og sagði ,,Uhhhh.... ég get séð að þú burstar og þú ert mjög vel tenntur... og sumar tennurnar eru ekki með holur.... eeeeeeen!!" Svo hún tók frá fyrir mig heila viku hjá tanna í byrjun maí!!! Grét mig í svefn það kvöldið..... Kannski ekki alveg... Núna erum við komin á sumartíma... Það þýðir að það er bjartara klukkutíma lengur og ég get búist við að pabbi hringi til mín klukkan eitt að nóttu til.... Sá gamli gleymir stundum tímamismuninum... Það er bara hressandi... Hver segir að maður eigi að sofa kl. 01:00? Spauglaust þá er kominn grillhugur í mig og markmið að grilla öll þau kvöld sem við verðum í Horsens í páskafríinu... Nú er að fara út og gera Webbberinn klárann! Jæja... Pásan búinn... Aftur að reikna burð í húsinu...! Þangað til næst K.kv Geir Ármann
»
12.03.2009 11:29:38 / gráman
Í sakleysi mínu kíkti ég inná mbl og rakst þar á hið fyrsta sýnishorn frá komandi mynd, Draumalandið eftir Andra Snæ. Ég vissi að það myndi ekki borga sig að lesa bókina, það hlaut að koma mynd. Og að sögn Andra Snæs, er myndin bara betri en bókin, svo að ef ég hefði lesið bókina hefði ég aldeilis keypt köttinn í sekknum....! Sýnishornið var samt það sem kom mér á óvart. Nú eru komin nokkur ár síðan pabbi gamli hætti í fréttunum hjá RÚV, en viti menn. Skyndilega birtist kauði á tölvuskjánum mínum. Myndskeið með gamla hafði verið fléttað inní sýnishornið af Draumalandinu og hlýtur hann þess vegna að fara með eitt af höfuðhlutverkum myndarinnar, og félagi við aðra stórleikara á við Geir H. Haarde, Davíð Oddsson, Ólaf Ragnar (forsetinn ekki persóna í Nætur og Dagvaktinni). Hérna er linkur svo þið getið fengið að berja gamla augum... http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/23382/Annars segi ég bara lifið heil og þangað til næst GÁG
»
24.02.2009 22:11:12 / gráman
Jæja, ég kemst alltaf að fleirri og fleirri leindum aðdáendum síðunnar, svo ég hef ákveðið að láta óvenju stutt líða á milli blogga... Sem gæti vel verið óhenntugt þar sem mínir dyggu lesendur eru, í hæsta lagi stilltir inn á að kíkja hérna inn tvisvar í mánuði... Svo viðbragða er kannski ekki að vænta fyrr en í lok mars mánaðar.... Hvað um það
Í dag prófaði ég í fyrsta skipti síðan í grunnskóla að læsa mig úti. Það var klárlega ofmetin ánægja... Einsog mér fannst þetta soltið fyndið þegar ég fattaði að ég hefði gleymt lyklunum og látið einsog þetta væri nú ekkert mál... Hafði séð fyrir mér huggulegan göngutúr heim frá skólanum sem myndi taka það langan tíma að ég væri kominn heim á sama tíma og leigjandinn... Nei, sá draumur hvarf einsog dögg fyrir sólu, eða öllu heldur einsog sól á bak við ský... Sólin hvarf neflinlega og það varð skítakuldi... Niðurstaðan var að ég sat út í skóla þar til Jónsi Leigjandi kom í bæinn...
Gleðin var gríðarleg þegar heim kom... Ekki bara var ég hamingjusamur yfir að hafa komist inní íbúðina mína, heldur hafði Katrine tekið á móti tveimur pökkum sem mamma hafði sent okkur... Það var einsog foreldrar mínir væru komnir í samkeppni, því viti menn...á pósthúsinu beið mín svo pakki frá pabba gamla.... Ég er að segja ykkur það, þetta varð góður dagur eftir allt saman...!
Núna ligg ég í rúmminu og kvarta sáran við konuna mína yfir að líkami minn sé allur að eldast... Ég tók uppá því að spila fótbolta í tvo tíma í gærkvöldi, og ég verð að viðurkenna að allt þetta vöðvaleysi og aukna fitulag, gerir liðamótunum mínum rosalega erfitt fyrir þegar ég þarf að stoppa eða taka aðeins kröftuglega af stað... Niðurstaðan er... Megrun... Bíddu... eftir að ég er búinn að borða öll kílóin af íslenska namminu sem mamma sendi, og drekka allt kókið frá ,,Grensunni" (þýsku landamærunum/staður með ódýrum vörum)... Þá verður klárlega tekið á því... Eða eitthvað..
Nota líka tækifærið og óska einum stærsta aðdáenda síðunnar til hamingju með afmælið... Óli Sig minn til hamingju með afmælið...! Pakkinn er örugglega í póstinum...!
Gunni bróðir er að keppa í Köben núna... Sit með smá bömmer yfir að þurfa að passa upp á aurana og geta ekki farið þarna yfir og staðið á hliðarlínunni, klæddur einsog klappstýra... Ekki viss um að það myndi auka sigurlíkurnar hjá honum samt...???
Talandi um Gunna þá opnaði hann nýjan veitingastað í Norræna húsinu 12.feb... Dill restaurant...Mæli með að allir kíki þangað í geggjaðan mat, í hádeginu eða kvöldmatnum... Og látið orðið berast...!
Jæja, augun eru að verða þurr... held ég hafi ekki efni í fleirri ófagmannlega uppsettar málsgreinar... vona einsog alltaf að þið hafið notið heimsóknarinnar á síðuna...
Þangað til næst...
På gensyn
-GÁG-
»
03.02.2009 15:19:09 / gráman
Jæja... Það má segja að það sé langt síðan ég skrifaði síðast og það er hitt og þetta sem hefur átt sér stað svona rétt á milli... - Fórum til Íslands yfir jólin 19.des
- Rosa huggulegt hjá múttu að vanda
- Gaman að hitta félagana
- Sökkaði í fótbolta
- Kíktum í bæinn með Gunna og Freyju
- Gunni fékk 1L bjór yfir sig 2 eftir að við komum inn á Amour
- Var aðeins betri í fótbolta
- Aðfangadagur; Góður matur Gunni... Klapp Klapp
- Jóladagur; Góður matur Mamma.... Klapp Klapp
- Spilaði handbolta HæFæv!
- Ónýtur í kroppnum eftir handbolta
- Familíu hittingur... indælt
- Heim aftur; gott/slæmt
Einsog þið sjáið hitt og þetta.... Skólinn byrjaði svo aftur núna í jan og það voru valfögin sem biður okkar... Ég hafði valið mér að læra eitthvað um arkitektúr... Það má segja að það hafi verið hálf ,,abstrakt" kennsluform. Það sem var samt absúrt var ferð sem við fórum til Kaupmannahafnar með valfaginu ásamt þeim sem voru í sama fagi á ensku línunni. Ferðin byrjaði ekki vel. Við áttum að keyra klukkan sjö frá skólanum en það var engin rúta. Rútan kom svo aðeins seinna en það var annað vandamál. Bílstjórinn, háaldraður maður frá Viktoríutímanum, gat ekki opnað dyrnar og sat fastur inní rútinni. Loksins eftir 15mín. brölt náði kallinn að opna rútuna með gríðarlegum mjaðmahreyfingum og stórum afturenda hans. Þá áttaði maðurinn sig á öðrum vanda.... Hann hafði lagt allt of nálægt runnanum svo enginn komst inn. Bömmer. Hann settist því inní rútuna aftur og það fór ekki betur en svo að hann lagði bara allt í botn á rútuna og bombaði því afturendanum á rútunni inní runnan og hreinsaði þannig afturljósin af öðru horninu af rútinni í einum rykk...!!! Ókei hugsaði Geir þá... Hmmm... Ætti maður að þora að fara uppí þessa rútu. Já það gerði ég... hefði kannski betur sleppt því. Alla leiðina til Köben sátu mjög svo pirrandi Spánverjar á móti okkur. Guð minn góður hvað þetta er ótrúlega leiðinlegt fólk... Þeir geta einfaldlega ekki talað saman, þeir verða að öskra á hvort annað... Leið á tímabili einsog það væru 100 leiðinlegar gelgjur sem sátu þarna... Jæja, aftur að bílstjórnanum... eftir að hafa eytt 1 og 1/2 klukkutíma í það að keyra einhverja Rússa inní Kaupmannahöfn svo þeir kæmust í sendiráðið sitt sitjum við föst. Vandamálið er að rútan er tveggjahæða og það var ekki víst hvort við kæmumst undir brúnna. Fyrir aftan okkur var komin mjög myndarleg röð af frekar pirruðum Sjálendingum svo það var útilokað að bakka út. Okkar maður grípur símann sinn og hringir í ,,Cheffinn" til að spyrja hvort hann komist undir bogabrú sem er 3 m. há. Svarið var nei.... Sem betur fer var undir miðja brúnna 4 metra hæð og hjálpsamur strætóbílstjóri sem sá að við vorum í vanda hélt umferðinni hinu megin við brúnna aftur svo við gátum keyrt undir miðjabrúnna þokkalega á lífi. Ævintýrið hélt svo áfram á leiðinni heim þegar okkar ágæti bílstjóri átti erfitt með að stjórna miðstöðinni. Það kom alltaf móða á rúðuna hjá honum og þegar við sáum hann setja rútuna á Cruiscontrol og standa upp í sætinu og þurka móðuna í burtu á ferð, stóðum við Raggi upp í von um að getað hjálpað honum. Við vorum fljótir að sjá að kallgreyið hafði bara kveikt á inniloftinu í einhverju fáti. Ókei við reddum því. Svo setjumst við aftur en eftir smá akstur stoppar kallinn aftur út í kannti. Geir til hjálpar reiðubúinn labbar frammí til hans og spyr hvað sé vandamálið. Þá stendur maðurinn og er eitthvað að baksa. Áður en hann nær að svara mér sé ég að við erum enþá ekki stopp. Kallasninn hafði ekki sett í handbremsu, í brekku!!! Jæja, ég sagði eins kurteislega við hann að við værum á ferð.... hann svaraði mér ,,Já það kemur smá móða ennþá"... Ég; ,,Já ég held ekki að þú skiljir asni! við erum á FERÐ!!!" Heyrðu Gamli stökk á ónáttúrulegan hátt uppí sætið og hammaði rútuna niður. Heim komumst við samt frekar ósködduð. En þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var undrandi í næstu ferð þegar okkar beið sami bílstjóri!!! Já sæll! En það er önnur saga. Pabbi og Systa voru hérna í Baunalandi í síðustu viku og við Katrine fórum og hittum þau þar sem þau bjuggu á Istegade að sjálfsögðu!! Það var agalega notalegt og ég held bara að þau hafi verið lukkuleg með ferðina. En ég held að ég segi þetta gott. Vona að þið, fáu sálirnar sem nennið ennþá að kíkja hingað, hafið notið. Pís Át... -GÁG-
»
17.12.2008 14:40:17 / gráman
Jæja... förinni er heitið á hið ísakalda land aftur.
Núna er ég nýkominn út úr prófi og er þokkalega ánægður með einkuninna... Hefði samt verið til í toppeinkunina þetta árið, en maður verður líka að vera kátur fyrir góða einkun...
Að öðru.. Nú styttist óðum í ferðalag enn á ný. Katrine og ég ætlum til Íslands yfir jóling og njóta ekta jóla í faðmi fjölskyldu á Akureyri. Ég vonast virkilega til að sjá sem flesta vini og kunningja.
Í kvöld höldum við ,,litlu jól" með mömmu og pabba katrine og hver veit nema við fáum að opna smá pakka... Gleði gleði... Svo á föstdaginn tökum við lestina eldsnemma til kastrup og lendum á endanum á Keflavík... Þar ætlar litli frændi minn Mikael og mágkona mín Freyja að sækja okkur og bruna með okkur til Reykjavíkur....
Daginn eftir brunum við með Óla og Jóni Árna Norður yfir heiðar til að hugga okkur...
Okkur hlakkar rosalega til og ég segi bara.... Hittumst heil öll sömul
Adios
GÁG
»
14.11.2008 07:44:02 / gráman
Púha... dagurinn byrjaði snemma hérna í dag...! Klukkan korter yfir sex opnaði lítill Geir Ármann annað augað og klukkan tuttugu mínútur yfir sex opnaðist hitt augað... Átti samt frekar erfitt með það í þetta skiptið þar sem ég var með stýrur sem fylltu upp augað á mér... veit ekki alveg hvað er í gangi...! Vill líka minna á að klukkan tuttugu mínútur yfir sex er klukkan tuttugu mínútur yfir fimm hjá ykkur flestum...!
Eeeeen já.... Við máttum fara aðeins fyrr af stað en vanalega þar sem Katrine þurfti að mæta tímalega í vinnuna til að smyrja rúgbrauð handa 140 krökkum í skólanum þar sem eldabuskan var veik.... keeeeemur!
Svo að ég byrjaði daginn minn einsog vanalega á að kíkja á bloggið mitt og gá hvort einhver væri búinn að skrifa eitthvað... Sem var ekki raunin... Bara Óli... Takk Óli... Svo ég fékk smá nostalgíukast og leit aðeins til baka.... Kíkti á blogg frá febrúar 2006... Vá... Ég var bara miklu betri í að blogga þá en nú.... Virkaði bara eitthvað svo miklu frískara... er ég orðinn útbrunninn???
Eða hvað... eru mínar verstu áhyggjur að verða að veruleika? Er ég að verða gamall...???? Eða enn verra....... er ég að verða þroskaður???????? Sjett...!!!! Hvað get ég gert... hvað... hvað...
Ég kenni facebook um, og myspace og highfive og öllum þessum síðum... Ég er gamall og ég man þegar blogg voru vinsæl... Ég er sennilega að verða so yesterday...!
Farinn í panik...
Ykkar eini og einlægi sonur vikunnar
Geir Ármann
»
04.11.2008 12:27:16 / gráman
Felldi nokkur tár yfir góðu vídjói, gleðitár n.b.! Það var John McCain sem fór á kostum, ég er nokkuð viss um að hann er vitlausari en George Bush. Þið getið séð þetta vídjó með því að smella hér. Þetta er bara vitleysislega fyndið!
»
30.10.2008 10:50:05 / gráman
Íslensk eldri hjón sitja inní ljótu eldhúsi, í ljótu húsi á ljótri jóskri heiði í Danmörku. Þau hlusta á P3 sem spilar vinsælustu lögin frá tíundaáratug síðustu aldar og lesa dagblað sem þau fá einu sinni í viku með bréfdúfu þar sem þau búa svo afskekt að það nennir hreinlega enginn að keyra póstinn til þeirra. Og að sjálfsögðu er ekkert internet eða því um líkt á þessari ljótu jósku heiði því það er einfaldlega ekki markaður til þess. Því þar búa bara Íslendingar. Íslendingar voru fluttir frá Íslandi 2011 eftir efnahags- og náttúruhamfarir til Danmerkur. Árið 2008 byrjuðu miklar efnahagshamfarir á Íslandi sem náði hátindi með útkomu Vísa reikningsins eftir jólin 2008. Þar með hrundi efnahagskerfið og landið vafraði á brún gjaldþrots. Ekki nóg með það að þjóðin hristist heldur hristist jörðin líka og skyndilega brustu út eldgos í öllum helstu elstöðvum íslands. Hekla, Katla, Krafla, Askja (merkilegt að þessi eldfjöll skuli öll bera kvennmansnöfn, spurning hvort það sé eitthvað líkt með eldfjöllum og kvennfólki). Einnig byrjaði að gjósa í nokkrum nýjum eldstöðvum s.s. Súlur á Akureyri. Þar varð sprengigos og sprakk norður hlið fjallsins í upphafinu og sendi af stað höggbylgju sem lagði Dalvík og Hauganes í eyði á svipstundu. Einnig byrjaði Esjan að gjósa og þurkaði samstundis út alla íþrótta aðstöðu Aftureldingar. Heimaey sprakk líka í einum hvelli og sendi Árna Johnsen upp til himna, a.m.k. tímabundið. Í öllum þessum eldsumbrotum byrjaði heldur betur að hitna í kolunum. Það varð til þess að allir jöklarnir á Íslandi byrjuðu að bráðna á gríðarlegum hraða og hopuðu um 50m á dag í staðinn fyrir 100m á ári. Þetta varð til þess að Hálslón yfirfyltist á hálftíma og Disjárvirkjun brast. Þegar hún brast flæddi gífurlegt vatn yfir allt Austurland og Egilsstaðir urðu Feneyjar Íslands. Öllum þessum hamförum fylgdi að sjálfsögðu gífurlegur hópur fréttamanna. U.þ.b. 1000 erlendir fréttamenn létu lífið við að flytja fréttir af þessum hamförum, sirka 990 voru breskir fréttamenn og hinir 10 voru mjög líkir Bretum. Þann 30.apríl 2009 var verið að sjónvarpa bílaeltingaleik milli vtifirts fyrv. stjórnmálamans og lögreglurnar. Stjórnmálamaður þessi hafði annars vanalega verið hrifinn af lögum og reglum og gekkst mikið uppí þess háttar málum. Stundum full mikið og var hann þess vegna rekinn. Þá gekk hann af göflunum og upphófst umtalaður eltingaleikur. Eltingaleikurinn endaði með að þyrla sem fylgdi eftir eltingaleiknum fyrir RÚV saug inná sig ösku frá Esju og hrapaði niður á bíl seðlabankastjóra sem lést samstundis. Forseti Íslands, miður sín eftir fráfall Seðlabankastjóra, ákvað að nú væri kominn tími til að hætta að ausa og yfirgefa dallinn og flúði land seinna um daginn. Fréttirnar bárust á ljóshraða til dönsku drottningarinnar sem brást við með snarræði og sölsaði undir sig Ísland á ný. Hennar fyrsta markmið var svo að framkvæma neyðaráætlun sem forfaðir hennar hafði áformað tveimur öldum áður. Að flytja Íslendinga frá Íslandi og koma þeim fyrir á jósku heiðunum.
Svo núna sitja Íslensk miðaldra hjón í ljótu eldhúsi, í ljótu húsi á ljótri jóskri heiði og konan segir; Elskan, mannstu þegar við áttum Bens?? Maðurinn svarar; Nei, eða jú alveg rétt, ég er ennþá að borga af honum.
»
27.09.2008 14:16:15 / gráman
Ég er ekkert að monta mig, en ég las inná uppáhaldsheimasíðunni minni mbl.is áðan að það væri snjó og hálku að finna á Íslandi í dag. Já, ég hjólaði á bolnum út í skóla í dag í 18°C hita, sól og 5m/s suðlægri golu... Bara nice! Skil samt ekkert í trjánum... Allt þetta góða veður en samt eru sum tréin komin með gul laufblöð... Mórall!
Um daginn tóku allir í bekknum svona próf sem heitir ,,Læringsstiltest" og er tilgangurinn með því að hjálpa manni að finna út hvernig persóna maður er þegar maður kemur að lærdómi og vinnu... Útkoman mín var að ég var mikill hugsuður og spáði í allt gersamlega útí þaula... Verð að segja að útkoman kom mér þó nokkuð á óvart og verð að viðurkenna að ég veit um nokkra fyrv. yfirmenn sem eru ósammála! HAHA! Þetta er reyndar soltið öðruvísi aðstæður hérna... Ekki einsog ég sé á tímalaunum við þetta og tek mér þess vegna bara minn tíma í það sem ég geri... Stundum of mikinn tíma...
Þess vegna sit ég einmitt núna út í skóla og dunda mér við lærdóm í staðinn fyrir að vera úti og njóta veðursins einsog annað eðlilegt fólk... Greeeeit!
Jæja. Þetta var bara smá check-in.. Over and out og back to work..
Ykkar eini og einlægi -GÁG-
»
17.09.2008 08:57:08 / gráman
Heyrst hefur að efnahagurinn á Íslandi sé ekki geggjað stöðugur og góður... Helstu fjármálaséníin okkar segja að það sé ekki hægt að fara í fýlu yfir þessu og leggjast í þunglyndi... Heldur eigum við að brosa bara og bíða þetta af okkur... bíta á jaxlinn og það... Djöfull langar mig að sparka í punginn á þeim... Ég get klárlega staðfest það að það er ekki gaman að eiga peninga á Íslandi og búa í Danmörku... 1 stk 1 dönsk króna kostar 17,5kr íslenskar... takk fyrir og góðan dag... Á erfitt með að fara að ráðum fjármálasénía okkar og brosa út í bæði á meðan þessu stendur... bíð alltaf eftir að gengið skáni en það virðist bara ekki ætla að gerast... Að öðru... Ég byrja vanalega daginn minn á því á meðan ég bíð eftir að kennslan hefjist, að kíkja á mbl.is. Það er allt gott og blessað þrátt fyrir sumir blaðasnápanna þarna kunni ekki fallbeygingu eða stafsetningu, og þeir fá borgað fyrir þetta. Það sem pirrar mig mest er að mogginn býður uppá moggablogg... KRRRRææææst.... Það eru sumir bloggarar þarna sem fara svo í mínar fínu taugar.... T.d. Jenný Anna Baldursdóttir ... Ó vá! Leiðinlegasti bloggari sem ég hef lesið... Henni tekst á ótrúlegan hátt að vera svo ,,böggandi" að það er ekki hemja... Býst við að maður dæmi hana strax frá því að það stendur í lýsingunni hennar á sjálfri sér að hún ,,Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á. ". Greeeeit... Fleirri femínistar.. Var það þá ekki bara tískubomba...? Hún var einmitt fremst í flokki þegar bókin um litlu negrastrákana fékk alla þessa gagnrýni á síðasta ári og fór ótrúlega í taugarnar á mér... Fleira sem fer í taugarnar á mér er að mæta niðrá strætóstoppistöð og horfa á eftir strætónum mínum keyra í burtu því hann er kominn á vetrartíma, 3 mín fyrr á ferð. 3 mín!! Tilhvers að breyta um tíma?? ASHOLES....! Hérna sit ég og læri byggingarfræðing og þar lærir maður t.d. um loftræstingu... Engum í þessum ágæta skóla datt samt í hug að búa til góða loftræstingu hérna... NEI... það eru bara fullt af götum sem eru áætluð sem loftræsting en ekkert kemur út um þau og ekkert fer inní þau heldur... Allir með hausverk og illt i nefunum.... ASSHOLES...! Jæja... Annars verðið þið að afsaka að ég hef ekkert skrifað í langan tíma. Það helsta sem hefur á daga okkar drifið eru fullt af afmælum útum allt... Stuð stuð stuð... Ein ferð í IKEA með peningana frá ömmu gömlu... Gæskan...! Keyptum friendssafnið og er ekki búinn að horfa sjónvarp síðan... Eignaðist Webergrill um daginn... Hot shot! Það þarf fleirri kol í það en það gamla... komst að því... Katrine er dugleg að leggja inn myndir á myndasíðuna okkar... hana getið þið séð með því að klikka hér. En segjum þetta gott af bitru bloggi... Yfir og út Ykkar eini og einlægi GÁG
»
11.06.2008 12:25:43 / gráman
Úha....
Hressandi dagur rúmlega hálfnaður hjá mér... Kominn með bakverk af því að virkilega húka yfir tölvu skjánum, drepast í úlnliðnum eftir músina, kominn með sár á vinstri músartakkaputtann, sár á rasskinnarnar og verst að öllu kominn með alvarlega heilablæðingu eftir að hafa skallað tölvuna mína... Við erum að tala um ein verstu kaup æfi minnar... Þessi tölva er í það minnsta ekki what makes me wet..
The próf is in tvær vikur og en dage.... Og geðveikin er hægt og bítandi farin að brjótast út úr fólki... Stundum finnast vandamál í þessu húsi sem við höfum verið að vinna í alla önnina sem við fyrstu sýn, gætu valdið því að húsið hryndi ef það yrði byggt... Þá eru eðlileg viðbrögð að sparka fótbolta sem endurkastast af veggnum í örbylgjuofninn og hrindir honum niðrá gólf, kasta pennanum sínum í eina Færeyginginn í bekknum, dúndra kotasælunni í gólfið og ýmis svona fleirri skemmtileg viðbrögð...
Sjálfur er ég ekki einsog ég á að mér að vera lengur.... Ég er byrjaður að gleyma að borða... jafnvel heilan dag... Ekki hafa áhyggjur, hef ekki orðið var við fitutap á mínum skrokk...
Góðar fréttir eru að eftir tvær vikur og 1 dag þá verður þessi önn sem mér finnst alltof löng (5 mánuðir) búin. Nánast sama hvernig fer þá verður manni ansi mikið létt. Og hey... 2.júlí klukkan átta að islenskum tíma þá verð ég kominn til Íslands, stíg út úr vélinni og fæ pooooootttþétt snjókomu í andlitið... Ég og Katrine vorum að spá í að vera kannski fram að helgi í Rvk... Kíkja á liðið og hugga okkur þar.... Lét mér detta í hug að kíkja á Siggeir og hans famelíu... Konu barn og dýr.. En er einhver til í að sparka í bolta þarna fyrir sunnan?
Tók eftir að fjölda gesta á þessa ágætu síðu er búið að fækka skelfilega... Tengi það klárlega til að ég hef verið svaðalega latur við að skrifa eitthvað hérna inn... Það myndi ég svo tengja við hvað ég er upptekinn í skólanum og latur við að kvitta fyrir mig á síðum annara. Og svo kannski að allir eru bara á Facebook eða Myspace eða HI5 eða þannig síðum....
Ananas
bið að heilsa
K.kv. -GÁG-
»
23.05.2008 08:31:03 / gráman
Ég veit ekki hvort að það eru bara lítil börn, innflytjendur (ekki að ég hafi eitthvað á móti þeim), eða almennt byrjendur í stafsetningu og málfari sem eru farnir að sjá um að skrifa fréttirnar á þeim ,,virta" fjölmiðli sem MBL.IS á að vera.Þeir fóru á kostum í málfari þegar mótmælin gegn bensínverði stóðu sem hæðst en ég ákvað að sitja á mér, en þegar maður les hluti einsog ég las áðan, foj. Það er byrjað að stinga mig aftur og aftur í augun hvað málfari og stafsetningu hefur farið aftur á þessari annars ágætu síðu. Hérna er eitt afar gott dæmi: http://www.mbl.is/mm/sport/fotbolti/2008/05/23/olafur_sleit_hasin/ . Glöggir lesendur ættu að sjá að þarna skrifar greinahöfundur ,,.....og gengst hann undir aðgerð í gær." Hvað segiru? GENGST HANN UNDIR AÐGERÐ JÁ? Jæja það er flott. Ég veit ég á það vel til að skrifa vitleysu af og til. En myndi segja að það sé munur á innsláttarvillum og svona málfarslegri dellu. Auk þess tel ég mig vera með forgjöf þar sem ég er ekki að skrifa fyrir dagblað og að ég er orðinn haugruglaður í öllum beygingum og notkun á orðum síðan ég fór að læra dönsku. Hinn óopinberi ritskoðari, -GÁG-
»
11.05.2008 12:21:24 / gráman
Ánægjan er mikil hérna í dönskum herbúðum....
Á meðan litla frænka býr til snjókall á Íslandi sit ég úti á palli að steikja á mér bumbuna í 24° hita, ekki lengra en þetta frá Íslandi....
Það er samt alveg magnað að fá svona sumar aktí núna þar sem við förum til Íslands í sumar og vitum ekkert hvernig sumar við fáum á Akureyri.... Annars er það að frétta að ég veit núna hvenær ég er búinn í prófum en það er 25 eða 26 júní svo við erum að vonast til að ná heim um 1 eða 2 júlí... Svo er að sjálfsögðu bara einsog alla þessa önn, brjálað að gera í skólanum... það er virkilega verið að gefa okkur pískinn...
Jæja, látum þetta duga fyrir þær örfáu hræður sem kíkja hingað enþá.... þetta var bara smá tjekkinn til að láta vita af manni...
yfir og út...
-GÁG-
»
Síður: 1 2 3 ... 21
|
Heimsóknir
Í dag: 16 Alls: 66192
|