|
Könnun
Best af slæmu
Kýld/ur í magann
1 atkvæði
Kýld/ur í gagnaugað
0 atkvæði
Kýld/ur í klobbann
0 atkvæði
Kýld/ur í kobbann
1 atkvæði
Kýld/ur í nefið
0 atkvæði
Kýld/ur í eyrað
0 atkvæði
Kýld/ur í rasskinnina
3 atkvæði
Kýld/ur í handakrikann
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 6
|
30.08.2005 23:39:23 / gráman
Sit alveg ógeðslega feitur fyrir framan tölvuskjáinn að éta
Lindu buff... umm það er svo gott... Ég man þegar Linda var á
Akureyri, ég er ekki frá því að nammið hafi verið talsvert betra þá
heldur en nú, enda allt gott frá Akureyri... Flest allt... Misgott
að minnsta kosti... Við getum a.m.k. sagt að við höfum meira gott
en aðrir... hana nú...
Aftur er ég pínu svekktur... Hefði alveg verið spurning að falla
í fyrra og skella sér í aðra útskriftarferð... Helvítis...
Tilvonandi fjórðubekkingar eru núna í óðaönn að pakka oní töskurnar
sínar, drífa sig til Tyrklands í 35°C og sól... Það er allt í
lagi, ég hata sól hvort eð er... eða nei... Samt varla að maður
hvað sólin er langt síðan maður hefur séð hana... Skíta sumar á
Íslandi þetta árið... En ég get ekki sagt annað en að bara skemmtið
ykkur ótrúlega vel... Það er ekki séns á öðru en að þið eigið eftir
að gera það, þvílík snilld sem okkar ferð varð... Man mjög eftir
því að hafa setið á ströndinni fyrsta kvöldið með Mythos í hönd og
vel af brúnu efni í munninum og hugsað... ,,Svona á lífið bara
að vera!!"... Leit reyndar út einsog fatahrúga eftir smá stund því
að ég var einn af þeim fáu sem ekki fór útí sjóinn svo allir kom
með eitthvað til að geyma hjá mér... Smá ráð er að taka lítið með
sér... það kostar ekkert þarna úti... enþá ódýrara en á Krít...
Þetta var þokkalega þéttur dagur hjá mér í dag... shitt... Mætti
í vinnuna klukkan 7:30 í morgun, var þar til 11:30 fór þá í skólann
til 13... vinna aftur til 16... skóli aftur til 17:30.. þá var það
æfing og svo skóli aftur kl 19:15 til 22:05... þétt skipulagður
dagur... Svona dagar eru leiðinlegir dagar... Komst að því í kvöld
að tækniteiknun er þvílíkt skemmtilegt fag... erfitt en manni líður
einsog atvinnumanni við borðið var að teikna glugga í kvöld frá
mörgum sjónarhornum og þverskurð o.s.frv..... hafði mjög gaman að
því þegar ég fór að stinga gömlu kallana af... HAHA
lúsers...
Útskriftarferðarfarar... skemmtið ykkur vel og komið kúkabrún
heim...
Yfir og út...
»
30.08.2005 00:02:29 / gráman
Áðan var salti núð í opin sár mín um allan líkamann, olíu hellt
á eldinn... eftir allt svekkelsið ákvað ég að taka því rólega í
kvöld og reyna að verða ekki meira svekktur en ég var þegar
orðinn.... Settist niður til að teikna og horfa á þennan
snilldarþátt, Contender... Tveir menn áttu að berjast, Jesse sem
mér fannst vera tussa... og svo Antony sem var minn maður... ákvað
það eftir að ég sá hann buffa einhvern Brent.... Þetta byrjar allt
vel fyrir minn mann svo sem eftir fjórar lotur var hann búinn að
vinna þrjár og með pálmann í höndunum og þurfti í raun bara að
þrauka þá fimmtu... Helvíti, nei... hann gerist höggóður og gleymir
að verja sig og rotast með tveimur höggum... Steinlá
helvítisgerpið.... I guess I bet on the wrong horse einsog maðurinn
sagði.... Minn maður er núna Alfonso... hann er svalur... líka
Sergio... ahh... þetta gæti verið erfiðarar en ég átti von á að
velja á milli...
Jæja, ég hef þá eitthvað til að hugsa um í vinnunni á morgun, á
sennilega eftir að bjarga deginum...
Geir Ármann kveður að sinni og vonar að þið hafið notið
flugsins, takk fyrir.
»
29.08.2005 20:41:57 / gráman
Er sársvekktur, vorum að fá gömlu tölvuna úr viðgerð.. Kallinn
sem sá um að gera við hana eyddi óvart út af heilu drifi sem
hann átti ekki að gera... Ég er ótrúlega svekktur en í henni
var alveg þvílíkur hellingur af lögum sem jafnvel eru sum ófáanleg
einsog diskur með hljómsveitinni ÞRÍR sem Jón Einar og Kári félagar
mínir stofnuðu til í stuttan tíma ásamt Friðfinn og á sennilega
eftir að verða þvílíkt gull síðarmeir... Svo var ótrúlega mikið
magn af bútlegguðu efni frá Black Sabbath sem aldrei hefur verið
gefið út og svona þess lags... Stóð til að færa þetta á milli en nú
verður sennilega ekkert að því og ég neyðist til að grenja mig í
svefn...
Hins vegar rakst ég á þessa æðislegu mynd af Jón Árna í
bangsabúning... þvílíkur kjáni...
http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=8238660&uid=3967815 tekið
í Vaglaskógi núna í sumar... Þetta hressti mig nú aðeins við...
Annars er lítið að frétta... Mátti taka erfiða ákvörðun áðan
þegar ég ákvað að fara á æfingu og skrópa í Iðnteiknitíma í
kvöldskólanum... ætlaði að þjóta af æfingu eins hratt og ég gat og
ná síðasta klukkutímanum... þegar ég mætti var tíminn búinn...
helv... týpískur Geir ég veit... Ég hefði svo sem getað sagt mér
þetta sjálfur... Náði grunnteikniáfanganum mínum í dag þegar
kennarinn varð svona líka hrifinn af því hvernig ég teiknaði hring
með hringfara(cirkli fyrir ykkur steinaldarfólkið)... Svo þegar
tíminn var búinn brunaði ég í Bónus og keypti mér hollan og
næringarríkan hádegismat... Prins Póló og Kók... íslenski
þjóðarrétturinn....
Komst síðan að því að ég þarf að fara með Grána gamla í
smurningu sem mér lýst hreint ekki vel á, það kostar peninga
og ég þarf að spara þá...
Hver sem var númer 1000 á síðuna gleymdi að kvitta eða bara
kærði sig ekki um verðlaunin þannig að ég ætla að hirða þau
sjálfur.. það var vinningurinn sem ég vann á Greifabingóinu hér í
vor... haha... djöfull er ég heppinn datt aftur í lukkupottinn og
vann sama vinninginn aftur... jibbí....
Ætla að enda þetta á ljóði sem ég rakst á hérna á korktöflunni
góðu....
I could take about an hour
on the tower of power...
just as long as I can get
a little golden shower....
Takk og bæ
»
28.08.2005 23:14:21 / gráman
Hvað sem það þýðir... Fólk spyr sig kannski núna hvort að Geir
gamli Gíslason sé alfarið búinn að missa það núna, en svarið er
einfalt. Nei ekki svo mikið. Ástæðan fyrir þessum skrítna titli er
sú að þetta er málsháttur sem ég fékk í páskaegginu mínu síðustu
páska.. Þá kemur að öðru afhverju datt honum hann í hug... Það er
jú vegna þess að hann hékk á korktöflunni minni sem er við hliðina
á tölvuskjánum af einhverri ástæðu... Hvað skildi þetta þýða?
Ég er nokkuð viss um að þetta þýðir ekki rassgat... Ég er búinn
að vera mikið að pæla í þessu fram og til baka og komist að þeirri
niðurstöðu að þetta er rugl alveg bara botnlaust rugl... Nói Síríus
(samt ekkert svo alvarlegur sko) hefur pottþétt bara orðið
uppiskroppa með góðu málshættina eða þá að hann hefur neitað að
gefa köllunum sem bjuggu til góðu málshættina launahækkun svo þeir
hættu... Við tóku svo ótrúlega lélegir kallar að semja málshætti og
það er mín kenning að Nói hafi ráðið til sín ódýrt vinnuafl sem að
eru útlendingar að öllum líkindum sem að útskýrir lélegu
málshættina að nokkru leyti.... Pældu í því hvað þetta gæti verið
búið að eyðileggja marga páska hjá fullt af fjölskyldum... Hverjir
hafa lent í því? Ég held að páskaeggjaframleiðendurnir verði að
fara að hugsa sinn gang...
Nóg um páskaegg og heimskulega málshætti.... Var að komast að
því að Helena Rán systir Flug Rán (haha) er að fara til NY að reyna
að komast á U2 tónleikana sem ég ætlaði á... Biturðin brennur innan
í mér og svekkelsið líka sýður í hausnum og svona... Það er
einsgott að þú hringir í mig Helena og leyfir mér að heyra Bloody
Sunday...
Svo er það Reykjavík sem tekur á móti mér um næstu helgi...
Handboltinn að fara suður um helgina, æfingaleikir og svona... Svo
verð ég eftir fyrir sunnan og er að fara á tónleika með Patty Smith
á þriðjudeginum með Gunna bró og Rúnka sem er limur í
ríðumannafélagi (færeyska fyrir meðlimur í reiðklúbb)... Það verða
að ég held massa góðir tónleikar, hlakka mikið til að kíkja til
Reykjavíkur í þetta skiptið, fullt af fólki flutt suður sem maður
þekkir og núna á maður eftir að hafa eitthvað að gera alltaf fyrir
sunnan... Bráðum verður það kannski þannig að ég verð einn eftir á
Akureyrinni... Ég, Óli, Jakob, Jónas og Gummi T erum eiginlega
einir eftir úr gamla genginu og Jakob ætlar til Norge eftir áramót
og Gummi og Óli og jafnvel Jónas að fara suður næsta haust...
hvað verður um Geir gamla...?
Ég finn það núna að örvæntingin hellist yfir mig, ég held samt
að þetta bjargist... Ég hlýt að getað fundið mér einhver vinaleg
,,krakkbörn" (sorry Bríet) í VMA til að vera vinir mínir...
Læt þetta duga í kvöld...
Astala vista... Baby!
»
28.08.2005 16:38:17 / gráman
Spennan eykst hver verður númer 1000...?
»
27.08.2005 20:27:44 / gráman
Dem, var að vakna... líður pínu eins og ég sé timbraður... hálf
kjánalegt ef satt best skal segja, er bara svona ofur soðinn eftir
að hafa sofnað í öllum fötunum og í lopaleystum í þokkabót undir
sæng í nokkra klukkutíma... það er alveg leiðinlegt verð ég að
segja... Það var neflinlega þannig að við í handboltanum tökum
stundum að okkur misskemmtileg fjáröflunarverkefni, t.d að tyrfa
heilan fótboltavöll sem var ekkert sérstakt en ekki jafn slæmt og
núna í dag... Vöknuðum klukkan 9 til að henda rusli úr fimm hæta
íbúðarhúsi... Þar af svona þrjú tonn af gamaldags pottofnum... Hver
ofn ca. 60kg... Svo fundum við tvo ógeðslega langa svona ofna sem
við máttum sex burðast með og ég er ekki frá því að Hreiðar
hafi drullað á sig við það... Amk lyktin sem kom frá honum ekki
góð... Það var samt skemmtilegt við þetta verk að við henntum
ofnunum fram af svölunum niðrí gám fyrir neðan okkur, það var
ótrúlega bíómyndalegt þegar ég og Valdi/afi henntum einu flykkinu
oná eitthvað gamalt borð í gáminum og það fór í 1537 búta... Magnað
það... svo var það orðið mikið kappsmál að brjóta ofnana eins mikið
og hægt var í hvert skipti...
Svo gerðist líka annað skemmtilegt... Ég og Óli fórum niðureftir
á bílnum hennar múttu til að spara jú mitt bensín... Þegar við
komum á staðinn kom í ljós að við þyrftum að bíða úti svo við biðum
í bílnum... Ég skellti bílnum bara í frígírinn og stóð á
bremsunni... svo þegar við fórum inn skildi ég bílinni eftir ekki í
gír og ekki í handbremsu... svo var það bara fyrir rælni,
klukkutíma seinna að ég lít útum gluggann og sé einhvern bíl útá
miðri götu og byrja að hlægja í huga mér að asnanum sem gleymdi að
setja bílinn sinn í gír eða handbremsu... þá rann það upp fyrir mér
að þetta var jú bíllinn minn sem hafði runnið aftur á bak og hálfur
uppá gangstétt og hálfur útá götu og gersamlega lokaði götunni
fyrir allri umferð... Já þetta finnst ykkur kannski fyndið... en ég
efast um að fornbílaklúbburinn sem keyrði þessa götu hálftíma
seinna hefði þótt þetta fyndið... þá hefði ég reyndar hlegið...
þrjátíu bílar og allir að bakka úr einbreiðri götu. Góðar stundir
góðar stundir...
Menningarnótt í nótt og það er fjögurra stiga hiti úti... er
nokkuð viss um að það verði sveitt inná amour.. Enginn sem vill
allavega vera úti.. Sjálfur er ég slappur í baki eftir ofnaburðinn
og ætla að sjá til hvað ég geri af mér í kvöld...
Yfir og út, Roger
»
25.08.2005 21:51:47 / gráman
Gott kvöld...
Fór í skólann í morgun, gekk útum allt fyrst í rigningunni í
leit að inngangnum sem ég ætlaði að nota, tók smá tíma og rakst á
Jakob í appelsínugulum sjógalla tilbúinn í það sem verða vildi...
Loksins fann ég innganginn og þá stofuna en enginn í stofunni... ég
varð pínu hissa og alltí einu mæti ég kalli sem ég hafði hitt áður
og hann rak mig inní aðra stofu og sagði að minn tími væri þar....
Ég settist inn með fullt af einhverjum skrítnum gaurum og nokkrum
sem þið þekkið sem enda bæjarins... Mér leið frekar skringilega og
ekki bætti það úr skák að þegar ég var búinn að sitja þarna í svona
korter og skildi ekki neitt þá leit kennarinn á mig og spurði: ,,
Ertu viss um að þú eigir að vera hérna...?" Ég sagði já að
sjálfsögðu er þetta ekki stofa E01?, kennarinn jánkaði því og þá
svaraði ég að jú hérna ætti ég að vera, það stæði svart á hvítu að
ég skyldi vera hérna á miðvikudagsmorgnum klukkan 8:15... Kennarinn
bennti mér þá blíðlega á með glott á vör að í dag væri nú
fimmtudagur en ekki miðvikudagur og bað mig að fara... Þetta bætti
pínu á þessa fyrrnefndu aulatilfinningu sem ég var með... ég
blótaði í sand og ösku og fór í vinnuna til 11:15 þar til ég átti
að mæta í alvöru tíma... Það var líka asnalegt, þekkti engan sem
sat með mér þennan ágæta tíma...
Bjargaði mér að þegar ég kom fram á gang rakst ég á Ester sem ég
kannaðist nú við og gat loksins talað við einhvern með viti og
einhvern sem ég þekkti... þá alltí einu kemur bara buna af fólki
sem ég kannaðist við... þetta var ótrúlega skrítið... Sem
sagt ekki svo slæmur dagur skólanum að því undanskildu að ég gerði
mig að fífli þarna um morguninn...
Svo var ekkert að gera í vinnunni og um hálf fjögur sendi
eigandinn mig upp í Bónus að kaupa nammi og gos handa okkur svo við
hefðum eitthvað að éta á meðan við sætum inná kaffistofu að
spila... snilld... vorum neflinlega fáir í vinnunni í dag og allir
latir... fínt þegar eigendurnir eru latir... Nú þori ég að veðja að
Björn Magnús kommentar á það að ég sé á launum við að gera ekki
neitt...
Jæja... ætla að fara að LÆRA!
Nei annars tv betra...
bæjó
»
25.08.2005 01:01:38 / gráman
Góða kvöldið mínir kæru lesendur... Margt dreif á daginn minn í
dag og í gær get ég ykkur sagt og á þessum tveimur dögum komst ég
að því að VMA heldur sig enþá aftur í fortíð og notast við biðraðir
í staðinn fyrir að nota netið einsog alvöru siðprúð stofnun...
Þannig var það nú neflinlega að ég þurfti að sækja stundaskránna
mína fyrir haustið í VMA í gærmorgun... Ég og Einar mættum klukkan
9 einsog okkur var sagt að gera og lentum strax í
klukkutímabiðröð... Eftir stundaskránni okkar...! Í hinum FORNFRÆGA
skóla MA skelltu þau bara stundaskránni á netið og sendu okkur gíró
fyrir því sem borga skildi... En þarna skipti það heljarmáli að
koma og taka stundarskránna svona til staðfestingar um skólavist...
Þvílíkt kjaftæði... svo þegar við loks komumst fremst þá kemst
greyið Einar að því að stundaskráin hans er ekki tilbúin! HAHA
sagði ég og hló mikið... þangað til að kelling sagði mér að ég ætti
að borga 34000kr fyrir að vera í helvítis kvöld skóla... hefði
sparkaði í punginn á henni ef ég hefði haft færi á því...
Dem.. Svo í þokkabót var stundarskráin mín öll í vitleysu svo ég
neyddist til að fara niðrí skóla aftur í dag og lenti í annari
biðröð í annan klukkutíma... og svo einni í viðbót...! Ég hef
aldrei staðið svona lengi og oft í biðröðum um æfina... og tölum nú
ekki um skellkaður innan um öll þessi ,,Krakkbörn" (orð sem Stebbi
og Jakob fundu uppá um VMA krakka)...
Skyndilega yrðir eitt ,,krakkbarnið" á mig og ég hrekk við
skíthræddur um að það eigi að ræna mig, sem væri frekar skrítið þar
sem ég kom á haugskítugum Bronco í skólann í haugskítugum
vinnufötum... Þegar ég kom hjartanu uppúr brókinni og náði
þrýstingnum niður aðeins fattaði ég að þetta var Bríet... vó...
venjuleg amk nokkuð venjulegt fólk í þessum skóla... ég fagnaði því
nú þekkti ég tvo í þessum skóla sem ég gæti talað við... Rakst svo
seinna á aðra tvo og þekki núna þrjá (2+2=3 lærði það í VMA)....
Komst að því að sumt af þessu krakkfólki er hið besta blóð og mér
ber þá sennilega að koma vel fram við það... En sumir voru mættir í
flauelsdissarafötunum sínum, með blingbling um hálsinn, Eminem
klútinn og derhúfu útá hlið á leiðinni inní Gryfju þar sem þeir
áttu að taka þátt í ,,rappbattle"...
Annað að frétta að beinhimnubólgan er að drepa mig... hún er
kominn upp í lærlegginn... ég sver það...! það er vont...
Jæja segjum þetta gott... þarf að fara að smyrja byssufeiti á
gripinn minn (byssuna þá) til að hafa hana reddí ef ég lendi í
drævbæi á leiðinni í skólann í fyrramálið...
Pís át mæ hómís!
»
23.08.2005 00:19:20 / gráman
Þetta var fanta fín helgi verð ég að segja, byrjaði með
Sjallamótinu á föstudeginum sem lauk svo á laugardeginum með
lokahófi... það þarf náttúrulega ekki að spyrja að því að við unnum
þetta mót einsog segir í svo salla fínni vísu sem ónefndir menn
hentu saman fyrir rappkeppni... finnst það hálf ósanngjarnt að við
skildum ekki vinna þá keppni líka ef satt skal segja... en ég er
ekki dómhæfur á svona rapp svo það skiptir engu sennilega... Fórum
svo úr KA heimilinu niðrí bæ þar sem ég rakst á þá mága Hadd og
Hjalta, ég kvaddi strákana sem ég kom með niðrí bæ, Óla (sem varð
eldhress), Jakob sem var eldhress á leiðinni niðrí bæ,
hlaupandi einsog vitleysingur um allt, Gumma T viskíspegúlant
verðandi og Jónasi hössler... Einsog segir þá kvaddi ég þá
pörupilta og sagðist hitta þá aftur niðrí Sjalla en sjálfur fór ég
með Hjalta og Hadd upp í Brekkugötu í lítið gítarpartí þar sem
Hjalti spilaði á leadguitar og ég stóð mig víst vel á
rythmagítarnum... Eftir fínt partí þar fór ég í Sjallan og hitti
Ask þar, Svíi sem vinnur með mér og hann var peningalaus og
allslaus svo ég neyddist til að borga fyrir hann fyllerí... eða
einsog hann sagði... ,,Geiri! Jeg hlupa udtt ekki med neina
penjinga, ekkert veski og enga peninga... Þú borga fyllerí ferer
meg i kvöld, er tad ekke í lagi...?" hafa ber í huga að hann söng
þetta svona meira þar sem hann er nú sænskur og svo var hann mikið
ölvaður... Ætlaði meira að segja að fara að slást við mann og annan
en vissi ekkert hvað hann var að gera... ég sagði bara öllum...
,,æji hann er sænskur" þegar þeir spurðu hvað væri eiginlega að
honum...
Fyndið atvik átti sér stað þegar ég og Askur stóðum við barinn í
Sjallanum og einhver kall kemur röltandi til okkar og bíður okkur í
þrjú hot'n'sweet skot á mann og skálaði með okkur og í öll skiptinn
örgaði maðurinn "GARRY NEVIL" áður en hann skellti skotunum í
sig... Þar sem hann var að borga fyrir áfengið sagði ég ekki orð en
Askur sendi honum fingurinn eftir að hann labbaði í burtu...
Í dag er ég svo búinn að lifa á Ask sem er búinn að vera að
borga skuldina sína með því að borga fyrir mig allt... mjög
gott...
Í gær var ég svo sporttinn á fætur eldsnemma eða klukkan 10 og
við mútta og Co. skelltum okkur á ,,Grána gamla" uppí Laugarfell...
Keyrðum uppúr Eyjafirðinum og ég var ekkert smá að njóta mín þegar
ég þurfti að keyra yfir hverja óbrúaða ánna á fætur annari....
Keyrðum svo yfir part af Sprengisandi og ég gerði mitt besta í því
að skíta bílinn út svo hann liti út fyrir að hafa farið í
fjallaferð.... Það gekk vel en svo lentum við í slagviðri og
rigningin sem kom frá hlið þreyf aðra hliðina á bílnum all vel svo
núna er einsog það sé eitthvað lítið um skítinn... lentum líka í
hagléli á Sprengisandi!! Komum svo niðrí Bárðardalinn og brunuðum
heim og Siggeir, ég varð ekki bensínlaus og fór þetta ekki einu
sinni á heilum tanki...
Þessi dagur átti að fara í að teikna í grunnteikningu en fór svo
að mestu í að vinna fram á kvöld og taka því rólega... sæki
stundaskrá í VMA á morgun, verður illa skrítið að halda áfram í
menntaskóla meðan maður ætti að vera að fara í háskóla... vorum
einmitt með smá kveðjugrill í gærkvöldi fyrir krakkana úr
vinahópnum sem eru að flytja suður... kósí stemmari í útitjaldi með
seríum... og trampólín og rauðvín...
Geir Ármann Gíslason kveður í bili, við hittumst heil...!
»
19.08.2005 00:21:29 / gráman
Já, svona er lífið... í dag hafði ég það illa notalegt...
Reyndar byrjaði dagurinn ekki svo gæfulega þegar ég hrökk upp með
andfælum við móður mína öskrandi á mig að ég hefði sofið yfir
mig... Ég rauk á stað og nánast klæddi mig í buxurnar á leiðinni
útí bíl... borðaði morgunmatinn á leiðinni í vinnuna og slapp með
skrekkinn... Morguninn leið mjög fljótt því ég var eiginlega bara
sofandi til tólf þegar ég fór heim að éta... Var svekktur þá, var
búinn að panta mjólkurgraut langt fram í tímann hjá eldabuskunni en
hún klikkaði heldur betur og ég fékk upphitaða afganga síðan í
gær... Sucks..!
Eftir hádegi birti hins vegar til... fór útá Svalbarðseyri að
setja upp innréttingu.. þvílík afslöppun, eigandinn skutlaði mér og
gaf sér svona klukkutíma í að sýna mér alla svalbarðsströndina í
rólegheitunum, en þar er hann víst fæddur... Ekki kvarta ég og svo
fékk ég líka að heyra margar skemmtilegar sögur af honum Rögga
litla... Svo tók það sirka tveggja tíma rólegheitisvinnu að festa
upp innréttinguna og við vorum komnir í bæinn uppúr fjögur,
klukkutími eftir sem fór í smá dútl... Helvítis svíinn er að hætta
hjá okkur svo núna vantar nýjan aula (gæjinn sem er látinn gera
skítadjobbin, slípa, sópa og henda rusli t.d.)...
Skutlaði honum heim í gær og hann skemmti sér konunglega yfir
því þegar einhver kall sem var með birgðir af áldrasli á toppnum
hjá sér tók rosalega beyju við gellunestið... þetta er náttúrulega
ekki frásögu færandi nema útaf því að í beyjunni hrinur allt ál
draslið af toppnum um öll gatnamótin og stoppar umferðina... HAHA!
leiðinlegt...
Sjallamótið á morgun og hinn... jess... frítt í Sjallann...
fyrir þá sem ekki vita þá fer ég ekki í Sjallann nema ég fái frítt
inn... Aldrei...
Fórum síðan í kvöld á Greifann, ég, Lilja, Óli og Jónas... það
var fínt, er ógeðslega saddur samt sem áður en það hefur oftast
verið álitið kostur ekki satt...
Hverjir hafa smakkað kólestrólsprengju á Greifanum...
ummmmmm!
»
17.08.2005 23:13:23 / gráman
Er á floti... Herbergið mitt er hrikalega
mikið á kafi í rusli, herbergið mitt lýtur út einsog subbulegt
Kiosk í Egyptalandi... T.d. núna sit ég við tölvuna og til þess
að komast að henni varð ég að færa fullfermi af bókum,
geisladiskum, teiknidrasli og DVD myndum á rúmmið mitt og á
gólfið, svo þegar ég þarf að komast í rúmmið þarf ég að færa
þetta allt til baka á skrifborðið.... Þetta virkar mjög mikið
einsog Tetrix í rauninni, nema að kubbarnir hverfa ekki þó ég
nái að raða þeim rétt saman, sem er svekkjandi, engin
verðlaun.... Komst þó að því að kosturinn við það að hafa nóg af
fötum liggjandi út um allt er hljóðeinangrandi sem er mjög
gott... held ég, samt leiðinlegt þegar manni vantar föt... Mig
vantar þvottakonu... einhver til í starfið...?
Var að saga í dag, átti mjög erfitt uppdráttar
þar sem að heljarinnar geitungar gerðu hvað eftir annað atlögu að
mér... Ég taldi mig vera rosalega sniðugan og bjó til sérútbúna
geitungagildru sem þeir áttu að fljúga oní og festast í...
Ekki leið á löngu þar til þeir byrjuðu að fljúga oní kókflöskuna
sem var skorinn og teipuð þannig að stúturinn snéri öfugt, oní var
svo smá djúsþykni með smá þynni... ætlað til drykkju handa þeim...
þeir flugu hvað eftir annað ofan í þessa glæsilegu gildru en af
einhverri ástæðu flugu þeir aftur uppúr og flugu svo hlæjandi í
burtu... spurning hvort þeir hafi orðið eitthvað skakkir af
lyktinni af þynninum...? Svo sá ég líka það sem ég taldi vera
stökkbreytt könguló því hún var öll í svona appelsínugulum blettum
útum allt... einsog allir vita hata ég köngulær ég HATA þær...
HATA!!!! OJ... HATA... jæja aftur að sögunni þar sem ég hata þær
drap ég hana umsvifalaust með priki... Skoðaði hana í öruggri
fjarlægð og kom svo með þá ályktun að hún væri stökkbreytt eftir
veru í lakkklefanum... Svo sá ég aðra og var fljótur að skjóta á að
þarna væri á ferðinni heill stofn af stökkbreyttum köngulóm,
jafnvel önnur kynslóð þeirra sem fyrst stökkbreyttust... Ég nefndi
þessa uppgvötvun við Óla sem er skordýravinur og formaður
skordýravinafélagsins í MA (SKORMA) og hann var fljótur að útskýra
fyrir mér að þetta appelsínugula drasl væru egg... ég varð fúll og
hélt uppi minni kenningu í smá tíma... ákvað svo bara að drepa
fleirri köngulær á morgun.... Jeij... Svo voru, í þokkabót við
þetta allt, allar plöturnar sem ég var að saga allar í roðamaur...
skordýrafaraldur á Trésmiðjunni Alfa... gott nafn á spennusögu
kannski?
Ég hata köngulær og með þessum fínu orðum slæ ég
botninn í þennan pistil...
Takk og bæ...
»
16.08.2005 00:26:17 / gráman
þar með er maður heimtur úr helju... þig rekið kannski upp
undrunnar augu þegar þið lesið þetta en sannleikurinn er sá að ég
lá banaleguna í gær... og ekki í fyrsta skiptið... leiðinlegt hvað
þetta virðist alltaf vera að koma fyrir mig... Þannig er
nefnlinlega mál með vöxtum að ég fór suður á Laugarvatn á
fimmtudaginn í æfingabúðir (útrýmingabúðir) með handboltanum, það
var fínt... Tvær æfingar á dag og svona líka fínn matur í
hádeginu á föstudaginn og laugardaginn, mjólkurgrautur
bara alveg einsog hjá pabba maður...! Hann á sennilega
aldrei eftir að trúa því... Ég viðurkenni það svosem að maður var
ansi þreyttur á morgnana og þá sér í lagi laugardagsmorguninn
eftir að hafa sofið á 5mm þykkri dýnulíki með nokkur sokkapör sem
keypt voru í Intersport deginum áður sem kodda.... Skilaði miklum
hálsríg og bakverkjum langt fram á kvöld....
Að lokum hélt ég svo aftur til Reykjavíkur að kveldi laugardags
til að hitta familíuna á meðan hinir í handboltanum grilluðu sér
eitthvað í gogginn og drukku öl... Frá laugarvatni hélt maður ansi
vel lemstraður og þá meira lemstraður á sumum líkamshlutum en öðrum
og ég er ekki frá því að það hafi ekki verið svo gott að keyra til
borgarinnar í þetta skiptið...
Þá tók við tveggja og hálfs tíma seta... fór með fólkinu í
leikhús, á Kabarett, það var ágætt, í rauninni mjög gaman... Var
samt frekar svekktur að vera ekki á Alice Cooper í staðinn, hefði
sennilega seint látið það spyrjast út um mig að ég léti Alice fara
framhjá mér... En því miður... því var haldið á B5,
veitingarstaðinn hans Gunna Bróðurs eftir leikhúsið að drekkja
syndum sínum... Eitthvað fór mjöðurinn illa í mig og eftir aðeins
fjóra bjóra eða svo varla mikið meira var kallinn pínu ölvaður...
þreytan sagði til sín og ég var kominn heim um þrjú leytið sem er
snemmt miða við að vera í Reykjavík city að djamma... sem er snemmt
miða við allt meina ég...
En þá fyrst byrjaði helvítið... ég áttað mig á því þegar ég kom
heim að ég hafði ekki étið neitt síðan á hádegi og það væri
sennilega ástæðan fyrir því hvað mér leið ógeðslega illa í
maganum... auk mikillar þreytu... ég náði samt að sofna og vaknaði
nokkuð hress ætlaði í IKEA með öllu pakkinu en séri við á miðri
leið og brunaði upp í Stuðlaselið í Breiðholtinu þar sem ég gisti,
beint á klósetið þar sem ég átti stefnumót við það sem ég át í
morgunmat... Sunnudagur til s/ælu.... sagði eitthvert skáldið og ég
bakka það ekki... ég lá í bólinu með ælupest allan daginn og kveið
fyrir að þurfa að keyra heim seinna um kvöldið... þá lá ég í
aftursætinu tilbúinn að stinga hausnum út um gluggan og sleppa
einni grænni á framrúðuna á næsta bíl... tókst það samt aldrei...
Hristi af mér mesta slenið í Blöndós þar sem mamma var að sofna og
stýrði okkur heim til ak...
Dagurinn í dag var svo leiðinlegur og ómerkilegur og fullur af
mistökum í vinnunni að ég hef sennilega aldrei verið skammaður jafn
mikið á einum vinnudegi... líka skammaður fyrir eitthvað sem ég
gerði vitlaust fyrir helgi... svo ég þurfti að vinna fram á kvöld
að laga mistökin... það er alltaf hresst og best líka... krækja í
smá yfirvinnu... hehh...
sæjónara....
»
09.08.2005 00:14:17 / gráman
Já reyndar eru komnir átta dagar af einangrun en sjö bara
hljómaði betur... Ég þjáist af næringarskorti og hef lést um ein
átta kíló, það er kíló á dag fyrir þá sem eru ekki nógu klárir í
stærðfræðinni... Bryndís mamma Lilju frétti af þessu og bauð mér í
snatri í grillmat... Ég get alveg sagt það með sanni að ég varð
himinlifandi... Einu máltíðirnar mínar þessa daga eru neflinlega
kvöldmatur.... SEM MÉR ER BOÐIÐ Í... og það leit ekki nógu vel út
með kvöldið í kvöld, en það reddaðist fyrir rest svo sem....
Ekki er það nóg með það að ég hafi dottið í lukkupottinn með
grillmatinn því að ég varð áðan lukkulegur eigandi af ,,Grána
gamla" Ford Bronco XL árg 1988... Þetta kvikindi er sex sílendra
(kann ekki að skrifa það á ensku), 2900rúmsentimetra vél að stærð
sem leysir út þessi líka fínu 160 hestöfl.... Þetta er að vísu
bensínvél en mjög vel farin og eyðir sáralitlu miða við gamla stóra
vél.... Einsog nafnið gefur til kynna er þetta grár bíll og orðinn
aldraður þess vegna gaf ég honum strax nafnið Gráni.... Nú fer smá
tími í að lappa uppá greyið... stoppa ryð á tveimur stöðum og fixa
ventlahúspakkningu sem smitar aðeins út frá sér og þá verður rokið
uppá fjöll... HALLELÚJA...!
Bensíntankurinn tekur 90 lítra....:Frjáls framlög eru vel þegin
í síma 868-3170
Kemst samt því miður ekki strax á fjöll því að ég neyðist til að
renna bílnum suður til mömmu... nenni því nú varla þegar ég er
kominn með þennan eðalbíl í hendurnar... þvílíkur kaggi....
Þar með slæ ég botninn í þennan auka pistil í dag... hittumst
heil....
»
08.08.2005 17:35:16 / gráman
vá, það er svoooo gott að komast á netið... fyndið hvað maður
fattar engan veginn hvað maður er háður netinu fyrr en maður kemst
ekki á það í smá tíma... þá verður maður hálf flippaður...
sérstaklega ef maður les alltaf allar fréttir sem maður les á
mbl.is.... Það er ekki hægt að ræða við mann, maður er bæði orðinn
heimspekingur og einbúi... Og þá meina ég einbúi... móðir mín fór
að heiman í tvær vikur sem fara að vera liðnar og ég verð að
viðurkenna það að ég er kominn með einbúaeinkenni...
Þessi helgi fór í að teikna heimikið í grunnteikningu, mynda
eitt brúðkaup sem tókst ágætlega... og afgangurinn fór í almennan
slappleika...
Grill í gær, grill á laugardaginn, grill á föstudaginn og grill
í kvöld...
Mig langar útá Krít... strax í gær helst...
farinn að teikna.. bæbb...
»
04.08.2005 00:48:17 / gráman
Já þar með er það ráðið... fór á Weddingcrashers áðan með
strákunum... fyrst á Subway sem var fínt... Subway var étinn á
ógnarhraða og ég er nokkuð viss um að það sé ástæaðan fyrir því að
eftir hlé í einni hláturssenunni þá fékk ég þennan ægilega sting
einhversstaðar í mallanum mínum... og það var rosalega vont svo ég
gaf frá mér vægt tíst svona til að halda karlmennskunni... Svo kom
önnur sena þar sem ég sprakk úr hlátri og því fylgdi rosalegur
verkur maður... svona gekk þetta út myndina, hlátur stingur,
hlátur, verkur svo að með neikvæðu taumhaldi kenndi ég sjálfum mér
að það væri vont að hlægja....?!?! nehh... en það var samt frekar
sárt... ég gekk svo hálf boginn útúr bíóinu en reyndi samt að halda
reisn útí bíl en hélt samt um magann undir lokinn einsog ófrísk
kona á 7 mánuði með morgunógleðina... Ekki svo gott ef ég á að
segja einsog er... Eftir smá rúnt með strákunum um bílasölur
bæjarins bað ég Jónas um að keyra mig heim ég ætlaði að fara heim
og hleypa geimverunni sem að greinilega bjó inní mér (einsog í
Alien) út... Í miklum sársauka staulaðist ég uppí rúmm og lá þar í
góðan klukkutíma í lægstu hliðarlegur að kálast í maganum...
Svo gerðist hið ótrúlega... þegar ég stóð upp til að svara í
símann, tilbúinn undir það versta var verkurinn bara farinn...
þetta er alveg merkilegt maður... Maður búinn að væla allt kvöldið
einsog maður liggi bara banaleguna og stendur svo upp einsog ekkert
sé... Ég hef því ákveðið að telja þetta kraftaverk... Ég var
greinilega að deyja, enda fanst mér ég sjá ljós göng en einhver
æðri máttarvöld kipptu greinilega í strengi og sögðu manninum með
ljáinn að hann væri nú að fara mannavillt og björguðu mér þannig
fyrir horn... með það er ég náttúrulega himinnsæll... Þó svo að það
hefði verið ágætt að láta rífa úr sér botnlangann, nokkra daga frí
svona, svo hefði ég kannski getað látið rífa úr mér hálseitlana í
leiðinni... já og jafnvel fjarlægja pínulítinn fæðingarblett á
rassinum á mér... Margar flugur í einu höggi...
Óli vildi meina að ég ætti bara að setja mig á biðlista eftir
heillri lifur.... þá datt mér í hug alveg þjóðráð... ef að áfram
heldur sem gerir þá verð ég með skorpulifur um fimmtugt og má þá
ekki drekka... sem væri skelfilegt... Er þá ekki bara málið að
skella sér á biðlistann núna og vera þá kominn framarlega í röðinni
þegar maður er fimmtugur... Mér finnst það þjóðráð...
Sæjonara...
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 12 Alls: 67326
|