Nú hringi ég í Jens..!!!
Könnun
Best af slæmu
Kýld/ur í magann
1 atkvæði

Kýld/ur í gagnaugað
0 atkvæði

Kýld/ur í klobbann
0 atkvæði

Kýld/ur í kobbann
1 atkvæði

Kýld/ur í nefið
0 atkvæði

Kýld/ur í eyrað
0 atkvæði

Kýld/ur í rasskinnina
3 atkvæði

Kýld/ur í handakrikann
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6
31.01.2006 19:12:34 / gráman

Stjarna er fædd

Já stjarna fæddist fyrir 12 dögum... Hann var svo skýrður á laugardaginn eftir erkienglunum tveimur þeim Mikael og mér.... Svo hann heitir Mikael Geir Gunnarsson.... Þessi litli fjallmyndarlegi frændi minn var skýrður í höfuðið á mér... ég er þvílíkt stoltur að ef ég fengi sirka hálfan cl. í viðbót af stolti myndi ég að öllum líkindum springa og væri hérna út um alla veggi...

Ég tók urmull af myndum sem fara brátt að flæða hérna inn á netið....!

Svo varð amma gamla níræði í gær... svo það var svaka djamm veisla... og svo keyrðum við Mæja systir heim í gærkvöld/nótt... Það var hresst...

Handboltalega séð ömurleg helgi... ekki nánar út í það... en því miður er ég rokinn aftur.. bara varð aðeins að monta mig...

Við hittumst heil...
-GÁG-  

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 23:33:11 / gráman

Blæs ekki úr nös!

Fór aftur öfugu megin framúr... klæddi mig aftur á bak í fötin, borðaði morgunmatinn minn öfugt (lét ostinn og smjörið snúa niður á brauðinu), fór í öfuga skó settist svo inn öfugu meginn í bílinn minn og keyrði öfuga leið í vinnuna... Vann allt aftur á bak svo ég afkastaði mínus einhverju í dag sem telst frekar slæmt... Þegar mér fannst nóg komið af svona öfugum (gay) degi þá ákvað ég að snúa mér við og gera hlutina rétt (straight)...

Dagurinn fór að mestu í að lagfæra mistök síðustu viku... Ekki ára því þá hefði ég þurft að hindra nokkur börn frá því að fæðast... Og ekki ætla ég að fara að vesenast í þeim pakkanum... djí! Ég vann einsog skrattinn væri með mig á launaskrá... Sem er sennilega málið og svo þegar klukkan sló fimm í fimm rauk ég út og prjónaði út götuna á Grána Gamla.... Hlammaði mér fyrir framan sjónvarpið og horfði á fyrri hálfleik af Ísland-SerbíaMontNEGRO.... Svartfjallaland... svartfellingur... fitufellingur...

-Hæ... Ég heiti Ivan, ég er Svartfellingur!
-Nei en skrítið, ég heiti Ivano og ég er fitufellingur...

Hresst.... Svo var það málið að ég þurfti bráðnauðsynlega að skella mér á æfingu til að fara í píptest.... bíbtest... hvort skildi það nú vera? Það fer væntanlega eftir því hvort það heyrist píp eða bíb í tækinu... en já hresst píp/bíb/píbtest þar sem við hlupum með púlsmæli og læti... helvíti magnað... Ótrúlega skrítið... lungun mín og hjartað mitt sögðu að ég væri á góðu róli en lærin mín þau bara sögðu ,,Hey, félagi, hættu þessum hreyfingum eða við förum með þetta í verkalýðsfélagið!"... Svo ég hlýddi og hætti... Á þetta bara inni... segja það ekki allir?

Svo gerði ég Rögga minn Johnsen ansi forvitinn... Sagði honum frá því að ég hefði skipt um banka um daginn útaf einu súkkulaðistykki... Málið er að KB-banki var að gefa nammi í Kringlunni um daginn.. ég var fljótur að hoppa á kallinn með nammið og tók nammi en þurfti að skrifa undir eitthvað blað líka... Kom svo á daginn að ég hafði skrifað undir að ég væri til í að láta hringja í mig og gera mér tilboð um að koma í KB-banka... í einn og hálfan mánuð hringdi svo einhver kall í mig... Hann var orðinn pínu pirraður eftir að fá svör einsog ,,Öhh... Nei, enginn Geir í þessu númeri..." eða ,,Geir gleymdi símanum sínum hjá mér, ég læt hann hringja í þig!" eða það besta ,,Nei, ég rændi einhvern gaur sem á þennan síma og ég er í KB-banka"... Notabene þá var það að sjálfsögðu ég sem talaði í öll skiptin....

annars bara kær kveðja allir saman....

ætla að enda þetta á brandara sem mér datt í hausinn í morgun þegar ég hlustaði á suðið í vekjaraklukkunni minni og suð í einhverri kellingu á leiðinni í vinnuna sem er sennilega í helvíti.... Hvað er líkt með konum og vekjaraklukkum? Þær suða og suða þangað til að þú lemur þær nógu fast...!!!

Nú verð ég kærður....

Já og punktur is... Gísli Litli Bróðir náði að brjóta á sér hægri öklann í dag... Alveg einsog stóri bróðir... ekki annað hægt að segja en að hann líti upp til mín...!     

-GÁG-

» 10 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 00:06:34 / gráman

Ísland brennur

Segjum sem svo að Sayed Ali bombusnillingur væri mættur á litla Ísland og væri með eina risastóra kjarnorkusprengju sem myndi bræða jöklana okkar á augabragði og storknaða hraunið myndi renna um allt og allir í klessu og við vissum að því... Það væri engin leið að flýja neitt við værum einfaldlega föst á eyjunni í einn sólarhring áður en eyjan okkar springur í klessu......

Hvað mynduð þið gera?

Sjálfur myndi ég sennilega boða í risastórt ættarmót, ráða 200.000 bítana til að mæta og trylla ættina og kaupa helling af "mjólkurkútum" og fólk afgreiðir sig sjálft á dælunni.... Set það bara á yfirdrátt.. ekki einsog einhver sitji uppi með skuldirnar...

kv. -GÁG-

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 20:29:09 / gráman

!

ohhh.... Helvítis ríkisstjórnin....

167.000 kr þarf til að uppfylla grunnþarfir einhleyps karls eða konu á Íslandi á hverjum mánuði....
Á Íslandi fá öryrkjar á bilinu 50.000-75.000 kr til að lifa af hvern mánuð og þurfa jafnvel að borga til baka....

Þetta súra Ísland...

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 01:40:26 / gráman

Neihhh!

Arg... shiturinn titturinn og allur pakkinn... Lennti í slagsmálum á grænmetistorginu í Nettó... einhver gaur réðst á mig og ég bara Hei hvadda'gera þanna helvítis meeeeelur... vilt'ekki bara skríða aftur oní hoooooluna þína...? Þá flippaði gaurinn og réðst á mig og gaf mér hnéspark í síðuna... Ég sagði bara hei... Niiiiiigga'whaaaaaaat? Tók um öklann á honum og sveiflaði honum aðeins yfir hausnum á mér og dúndraði honum svo á bólakaf í bananana (réttu mér bananana Nanna segðu þetta hratt, alger snilld Eggert Þorleifsson!!) og kastaði svo í hann eitt stykki ana(L)nas og köku og sagði svo ,,Hafðu þetta þarna fruitcake!". Og þá fór gæjinn að gráta... Þá fékk ég pínu samviskubit og labbaði til hans og klappaði honum á kollinn... Þá kom í ljós að hann hafði kúkað í bleyjuna sína og háskældi yfir þessu og alltí einu kemur mamma hans hlaupandi alveg brjáluð við mig og lamdi mig til óbóta með töskunni sinni...

Segið svo að við lifum viðburðarlausu lífi hérna heima á Akureyrinni.....
ATH! Sumir atburðir í sögunni eru stórlega ýktir eða áttu sér ekki stað

K.Kv.
-GÁG-

» 12 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 03:29:26 / gráman

Danny og Old Boy

Vá... Fyrir nokkrum mánuðum horfði ég á mynd sem heitir Old Boy... Hún var með brútal flottum slagsmálaatriðum sem voru samblönduð af hinum og þessum bardagaíþróttum og svo bara venjulegum slagsmálum þar sem allt er leyft, meir að segja hamar!! Í henni var líka mikil siðfræði og hitt og þetta sem fékk mann virkilega til að sitja eftir agndofa...

Núna var ég að klára að horfa á aðra mynd sem heitir Danny The Dog... Þessar tvær myndir standa klárlega uppúr sem ótrúlegustu bardaga- og slagsmálamyndir sem ég hef séð á æfinni...! Danny var bara snilld frá upphafi til endis og hún er þvílíkt vanmetin! Hreint út sagt snilld! Strákar þið eigið eftir að fýla öll geðveiku slagsmálaatriðin og stelpur þið getið sótt popp á meðan þau eru því það eru alveg róleg atriði þar sem Morgan Freeman reynir að hressa upp á Danny greyið sem var orðinn hálfgerður hundur...

Flottasta slagsmálaatriði í heimi var í henni og fór fram á einu fermetra á pínu litlu baðherbergi! Mjög töff!

Jæja... þetta gengur ekki...

Góða nótt!

-GÁG-

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 00:21:27 / gráman

Er frelsisstyttan flott?

 Smá listi sem ég var að gera um daginn.... Kynverur, þá helst kvennkyns kynverur... Hérna er það ekki aðalmálið að vera falleg eða svoleiðis þó það spilli ekki fyrir... Hérna er það aðalmálið að vera með rétta hvað heitir þetta aftur... útgeislun, sex apeal, kynþokka eða einsog er vinsælt hjá yngra fólkinu... getnaðarlegar.... Þetta er ekki listi þar sem raðað er eftir vinsældum og hann er ekki tæmanlegur... En svona hefst það:

1) Ásta úr Stundinni okkar
2) Cameron Diaz (augnaráð sem hún keypti hjá kölska til að tæla kallana)
3) Julie Styles
4) Frelsisstyttan
5) Elín Hirst fréttakona
6) Berglind flugmannsdóttir
7) Kattarkonan (Michell Pfeiffer í einni Batmanmyndinni)
8) Charlize Theron.... DEM! Hnakkar mann með augunum!
9) Silvía Nótt
10) Ashley Simpson

Þetta er bara topp tíu hérna, tuttugu í viðbót hérna vinstra meginn, alveg agalega snjallt...

Éss þetta er komið gott í bili... Það væri gaman að sjá hvort ég væri að gleyma einhverjum sem þið haldið að ætti að vera þarna? Eða hvort ég sé alveg í ruglinu yfir einhverjum kellum þarna inni....?

-GÁG-


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 19:54:29 / gráman

Já, eitt núll og unginn leit dagsins ljós!

Var að eignast lítinn... Nei risastóran frænda áðan.... Tinna Brekkan hans Gunna Bróðurs fæddi eitt stykki stráksnáða og hann var heil 18 merkur... hvað sem það þýðir... ég var samt 17 og ég er hlussa... svo hann hlýtur að vera risi... Upprennandi handboltastjarna er fædd...

Til hamingju minn kæri bróðir og Tinna mín...

Ég kem suður sem fyrst til að bjóða hann litla Geir Ármann frænda minn velkominn í heiminn....

Yfir og út.... Undir og inn....

-GÁG-  

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 00:46:23 / gráman

Guð sagði verði ljós og það varð ný rakvél!

Jess... Hell já... Eignaðist nýja rakvél í dag...

-Til hamingju Geir Ármann
-Já þakka þér fyrir... hættu svo að skrifa á bloggið mitt... þú sem ég veit ekki hver er..

Fór í Hagkaup í hádeginu í morgun með sjálfum skippernum Sæbba Skú, þessum eðal manni.... Við stígum inní Hagkaup og lendum strax í áreiti... Einn helví dvergurinn ræðst á sævar og byrjar að riðlast á löppinni á honum... Þá komu aðsvífandi securitas gaurar og rifu hann í burtu af Sæbba... Það tókst nú ekki betur til en svo að dvergurinn reif í burtu aðra skálmina hans Sæbba svo við löbbuðum áfram inn og Sævar bara í einni skálm... Heppinn að vera í almennilegri brók... Hefði t.d. ekki getað labbað með honum þarna inn ef hann hefði verið í rasistabrókinni sinni... Það hefði endað illa þar sem það voru fullt af innflytjendum að vinna þarna á kössunum.. Allir frá Írlandi, með rautt hár og hvítir...Pakk... Áfram hélt ferðinn inn í þessa verslun stórveldisins og efnishyggjunnar... Mér hryllti við þessu öllu... Föt úr gerfiefnum á útsölum, gerfirammar með gerfiefni, hnífar úr gerfi stáli... Gerfivinir á tilboði á föstudögum og laugardögum... Ekki hægt að skila gerfivin og bannað að máta! Svo við hættum okkur en dýpra í maga ófreskjunnar í leit að sallatbarnum og djúpsteiktri ýsu... Dem, þarna hljóp freðin ýsa, ætla að hlaupa og ná henni.. Neihh.. Sævar.. ég týndi Sævari... Fuck... jæja ég verð að fá mér eitthvað að éta, Sævar er stór strákur og getur bjargað sér sjálfur... Finn mér til ýsu og franskar, fish'n'chips, týpískur innflytjendamatur frá Írlandi... Írar gáfu landinu okkar nafn... Þeir vissu að Írland var upptekið svo þeir færðu annan stafinn aftur um einn í stafrófinu og fengu þar með Ísland, nafn sem gat minnt þá á heimaslóðir og nafn sem minnti þá á að kaupa sér úlpu...  Jæja, held nú í átt að borgunnarkassanum, útganginum úr helvíti þar sem maður þarf að borga sál sína fyrir 70gr af frönskum 150gr af djúpsteiktri ýsu og koktel og hrásallat... Þá sá ég að einhver engillinn hefur misst pakka af himnum... Rakvél... hell já "Philipshave 2000 turbo! Super Vacum, NO MESS GUARENTE!" Ójá, Gabríel erkiengill hlýtur að hafa látið hana detta niður til mín eftir að hafa lesið bloggið mitt um daginn... Ég gríp hana en um leið og ég gríp hana finn ég að einhver grípur mig... Ég lít við... HELL... einhver djöf. Írinn mættur á svæðið og hann reyndi að hrifsa af mér rakvélina... Upphefjast mikil slagsmál.. Ég lendi undir en rýgheld í rakvélina og orga ,,Láttu mig vera... Gabríel erkiengill gaf mér þetta! FARÐU!"... Og viti menn... hann fór!

Sævar Skúli, þú ert bjargvætturinn minn... Haldiði að kallinn hafi ekki fundið sallatbarinn og þar hafði hann fundið poweraid og aukalíf og mundi að save-a og kom mér til bjargar... Éss... við komumst óáreittir framhjá peningakössum satans og útí bíl og Gráni kom okkur aftur niðrá trésmiðju í heilu lagi nema Sæbbi, vanntaði eina skálm á buxurnar hans... Ef þið sjáið dverg í einni alltof stórri skálm nenniði að taka hana af honum... Sæbbi á ekki aðrar buxur...

-GÁG-

» 18 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 17:32:51 / gráman

Nýr maður

Vaknaði í morgun, leið tíu kílóum léttari.... Einföld megrun átti sér stað í gær... Ég rakaði mig! Rónin Geir rakaði af sér tíu kíló af skeggi með matarleifum síðustu tveggja vikna... Móðir mín stóð orðlaus þegar ég kom út af baðherberginu eftir góðan klukkutíma rakstur! Málið var jú að báðar rakvélarnar mínar eru ónýtar... Svo ég neyddist til að nota sköfuna... Og það er ekkert djók að nota sköfu þegar þú ert með meira hár framan í þér en á hausnum... Eða svona nálægt því... Það voru bara skærin fyrst og svo tvær umferðir með sköfunni... HELL! Ég hata sköfuna! Hún er dauð... Afleiðingarnar eru eitt stykki barnsrass röltandi um á heimilinu mínu... Ég þekki mig svo lítið svona skegglausann...

Var agalega fúll áðan... Fauk ein fylling við það að fá mér tyggjó.... Ég er að spá í að fljúga til Tælands og láta rífa úr mér allar tennurnar og setja í nýjar postulíns... Betra en nýtt!

Mæja systir á afmæli í dag, pælum í því, núna eru 33 ár og einn dagur síðan hann karl faðir minn bað múttu um að unga krakkanum út úr sér degi fyrr.... Svona upp á praktíska hluti, einsog að eiga afmæli á sama degi...!

Hei, þú feiti færðu þarna kéééttlingur....
-Haltu kjafti, ég er ekki feitur... Ég er stórbeinóttur
Godzilla var stórbeinótt... Þú er bara feitur

Og með þessu orðum sláum við botn í þennan fréttatíma... Njótið daxins og lífsins og akið varlega... Hittumst heil...
-GÁG-

» 16 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 00:12:55 / gráman

Svefnskortur

Ohh... djöfull... svaf ekki neitt í nótt... helvítis koddinn og lakið fór í sæng saman... alveg ótrúlegt.... Hata þegar það gerist...

GÁG

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 21:12:14 / gráman

Ellin, hún er svo helvíti smellin!

Pabbi gamli á afmæli í dag... Til lukku með eitt árið í viðbót gamli pungur... !

Þinn sonur Geir Spidermann

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 02:14:47 / gráman

Opal!

Quintin Tarantino er kééélling... Kééétttlingur... Hann fékk sér þrjú skot af Opal (draslið sem við drekkum þegar við nennum ekki að finna áfengisbragð) og sagðist hafa logað allur að innan... Píka! Svo talaði hann líka fallega um íslenska kvennfólkið... fannst þetta frekar fyndið sko...

Kíkið á Kvikmynd.is og kíkið á þetta, hallið ykkur aftur í stólnum og ,,Tjillið!"....

,,Í Bandaríkjunum er aðalmálið að hella stelpurnar nógu fullar svo maður fái þær heim með sér... En á Íslandi er markmiðið að ná þeim heim með sér nógu snemma til að þær drepist ekki og æli útum allt baðherbergisgólfið þitt!" - Tarantino hjá Conan O'Brian

kv. Herra Hundfúll

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 23:01:53 / gráman

Ruglaðist í rúminu...

Ókei.... Hefði átt að tala meira um það hvað ég saknaði þess að getað slugsað mig í gegn um eina prófatörnina í viðbót í MA.... Ég er að fara í munnlegt lokapróf á morgun í Viðgerðar og breytingarvinnu... Hallelúja og Guð og Jósep og Séra Pétur á Súbarú.... Hressandi að fara í lokapróf í áfanga sem maður er nú búinn að sitja í alveg eina og hálfa viku...

DéVaff reynir í dag að sleikja sárin með því að birta góðlátlega grein um hvað öryrkjar eru hlunnfarnir... Þeir greinilega misstu af því um daginn þegar þetta bar hvað hæðst á góma... Aðeins á eftir... Við megum kannski fara að búast við betri blaðamennsku frá hálfu DV eftir að sornautið og subbulegi rithöfundurinn sögðu upp í gær...

Sjálfur er ég hérna tvístígandi... Ég nenni ekki að læra... langar út á leigu og taka eina spólu og taka ,,tjillið" á þetta því það er svo gott að ,,tjilla"...

Geggjað fúll... félaga minn var rekinn úr vinnunni sinni... hann þótti víst orðinn full bústinn og var Nígeríu maður ráðinn í starfið hans... hann vann við að þrýfa ljósastaura að innan...

Analnas... Bróðir Johnny Naz...
KV
Geir Ármann

Sleikir hamstur!

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 19:28:57 / gráman

Sekur uns sakleysi er sannað?

Ísland vaknaði í dag æfareitt.... Á allra manna vörum er DV-málið... DV tókst það... eftir að hafa farið yfir línuna oft og mörgu sinnum ásamt sorpritinu Hér og Nú ruddu þeir línunni í burtu einsog ekkert væri eðlilegra því það braut ekki sínar eigin siðareglur... Þeir hafa sagt skilið við siðareglur blaðamannafélagsins og gera það sem þeim sýnist... Þetta er út í hróa...

Allir vita að dómskerfið okkar er til háborinnar skammar og að refsingarnar sem okkar ólukkulegu afbrotamenn hljóta eru oft fáránlegar og óraunhæfar... úr öllu samræmi við hegningar á öðrum brotum! Ef við tökum sem dæmi um mann sem hnupplaði einhverjum buxum og dúnvesti í Smáralindinni og hlaut fyrir það fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm á sama tíma og barnaníðingur hlýtur tveggja mánaða þyngri dóm! HVAÐ ER ÞAÐ? Þess vegna hef ég ekki mikið verið að fetta fingur út í það þegar DV rífur í sig glæpamenn.... SEM ER BÚIÐ AÐ DÆMA! Nú vill svo til að DV tók það í sínar hendur að rannsaka glæp, dæma í málinu og kveða upp útskurð á örfáum dögum... Þeir hafa fyrir því upptökur af ellefu ára strák sem sönnunnargögn... Enginn sálfræðingur eða fagmaður var látinn yfirheyra strákinn eða strákana... Allir vita það vel að börn eiga það til að segja ósatt án þess að ég sé að segja að svo sé í þessu tilfelli þá hefði mátt rannsaka þetta meira og láta fagmenn vinna sína vinnu... DV rústaði lífi eins manns og aðstandenda hans á einum degi... Ekki bara að DV hafi með óblaðamennsku sinni skemmt nokkur líf heldur skemmdu þeir líka fyrir málsókn fórnalambanna í þessu tilfelli...! Sama hvort maðurinn var sekur eða saklaus þá fara svona mál sína leið um dómskerfið og þegar SEKT ER SÖNNUÐ er í lagi að fjalla um það á svona hátt.... Hvernig sem það er svo gert...

Þjóðin vaknar reið og örg og fjölskylda hefur misst náinn aðila, sama hvort hann var glæpamaður eður ei þá var hann partur af fjölskyldunni og ég efast um að nokkur maður vilji sjá á eftir fjölskyldumeðlim þó svo hann hafi brotið af sér á þennan viðurstyggilega hátt... Frekar vill ég getað heimsótt hann á Hraunið eða á Klepp... Því miður... Úrræðin voru fá fyrir manninn og í litlu bæjarfélagi einsog Ísafjörður er þarf ekki mikið til að eyðileggja líf einstaklinga... DV snýtti útúr sér einni grein sem tók þau einn til tvo daga að búa til og þurkaði svo horið sitt með nokkrum lífum...
Ég skil samt vel sjónarmið foreldra... Þetta er hryllilegt og það er ekkert víst að maðurinn hefði hlotið mannsæmandi refsingu ef hann hefði verið fundinn sekur... Dómskerfið og hegningarlögin okkar eru bara því miður þannig...

Núna er það spurning hvort að við séum að gera píslavott úr barnaníðing...?

Að mínu mati er þörf á alvöru rannsókn og leiða sannleikann í ljós... Engu að síður verð ég að segja að DV fór yfir öll velsæmismörk einsog oft áður en þarna er um mannslíf að ræða og þess vegna skora ég á alla að kaupa ekki þetta sorp... Þetta blað er siðferðislega rangt! DV þorir þegar aðrir þegja? DV kjaftar þegar aðrir sýna skynsemi!

Sekur uns sakleysi er sannað!?

Kv. GÁG

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 67327