Jájá... alltí lagi... ég skal taka til innihjá mér....!
Ég hata þetta, mér er farið að líða einsog Wayne úr Wayne's World
(þá meina ég í mynd 1) þar sem hann býr heima hjá mömmu sinni og
pabba... En ég lýt á björtu hliðarnar og bíð líka með eftirvæntingu
eftir fyrirheitna landinu....
Anyways... er orðinn hálf blogggeldur og á bágt um með mig... hef
bara virkilega ekkert að skrifa um þetta er ótrúlegt, vanalega
hefur vitleysan ollið út um eyrun á mér og jafnvel hafragrautur út
um nefið líka eða var það eitthvað annað.... En hvað um það ég á í
bloggerfiðleikum... Það gefur mér kannski það til kynna að það
gerist mjög lítið spennandi fyrir mig og það gefur það til kynna að
ég er kannski ekki mjög spennandi sem þýðir það kannski að ég geti
kannski ekki skrifað svo spennandi pistla og kannski bara kannski
er þetta orðin alltof löng setning.... Sko sjáiði ekkert að
segja...
Í myrkrinu ég mér velti og
velti
mikið í mun svefn að taka
Hvað eru mörg göt í mínu belti
Ég held bara að ég sé andvaka
Stend á höndum,
þamba mjólk,
tel svo kindur,
og les hundrað bækur.
Allar þessar andvökunætur!
Hver hefur ekki lent í þessu?
-GÁG-