Nú hringi ég í Jens..!!!
Könnun
Best af slæmu
Kýld/ur í magann
1 atkvæði

Kýld/ur í gagnaugað
0 atkvæði

Kýld/ur í klobbann
0 atkvæði

Kýld/ur í kobbann
1 atkvæði

Kýld/ur í nefið
0 atkvæði

Kýld/ur í eyrað
0 atkvæði

Kýld/ur í rasskinnina
3 atkvæði

Kýld/ur í handakrikann
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6
30.10.2008 10:50:05 / gráman

Árið er 2028

Íslensk eldri hjón sitja inní ljótu eldhúsi, í ljótu húsi á ljótri jóskri heiði í Danmörku. Þau hlusta á P3 sem spilar vinsælustu lögin frá tíundaáratug síðustu aldar og lesa dagblað sem þau fá einu sinni í viku með bréfdúfu þar sem þau búa svo afskekt að það nennir hreinlega enginn að keyra póstinn til þeirra. Og að sjálfsögðu er ekkert internet eða því um líkt á þessari ljótu jósku heiði því það er einfaldlega ekki markaður til þess. Því þar búa bara Íslendingar. 
    Íslendingar voru fluttir frá Íslandi 2011 eftir efnahags- og náttúruhamfarir til Danmerkur. Árið 2008 byrjuðu miklar efnahagshamfarir á Íslandi sem náði hátindi með útkomu Vísa reikningsins eftir jólin 2008. Þar með hrundi efnahagskerfið og landið vafraði á brún gjaldþrots. Ekki nóg með það að þjóðin hristist heldur hristist jörðin líka og skyndilega brustu út eldgos í öllum helstu elstöðvum íslands. Hekla, Katla, Krafla, Askja (merkilegt að þessi eldfjöll skuli öll bera kvennmansnöfn, spurning hvort það sé eitthvað líkt með eldfjöllum og kvennfólki). Einnig byrjaði að gjósa í nokkrum nýjum eldstöðvum s.s. Súlur á Akureyri. Þar varð sprengigos og sprakk norður hlið fjallsins í upphafinu og sendi af stað höggbylgju sem lagði Dalvík og Hauganes í eyði á svipstundu. Einnig byrjaði Esjan að gjósa og þurkaði samstundis út alla íþrótta aðstöðu Aftureldingar. Heimaey sprakk líka í einum hvelli og sendi Árna Johnsen upp til himna, a.m.k. tímabundið.
    Í öllum þessum eldsumbrotum byrjaði heldur betur að hitna í kolunum. Það varð til þess að allir jöklarnir á Íslandi byrjuðu að bráðna á gríðarlegum hraða og hopuðu um 50m á dag í staðinn fyrir 100m á ári. Þetta varð til þess að Hálslón yfirfyltist á hálftíma og Disjárvirkjun brast. Þegar hún brast flæddi gífurlegt vatn yfir allt Austurland og Egilsstaðir urðu Feneyjar Íslands. 
    Öllum þessum hamförum fylgdi að sjálfsögðu gífurlegur hópur fréttamanna. U.þ.b. 1000 erlendir fréttamenn létu lífið við að flytja fréttir af þessum hamförum, sirka 990 voru breskir fréttamenn og hinir 10 voru mjög líkir Bretum.
    
    Þann 30.apríl 2009 var verið að sjónvarpa bílaeltingaleik milli vtifirts fyrv. stjórnmálamans og lögreglurnar. Stjórnmálamaður þessi hafði annars vanalega verið hrifinn af lögum og reglum og gekkst mikið uppí þess háttar málum. Stundum full mikið og var hann þess vegna rekinn. Þá gekk hann af göflunum og upphófst umtalaður eltingaleikur. Eltingaleikurinn endaði með að þyrla sem fylgdi eftir eltingaleiknum fyrir RÚV saug inná sig ösku frá Esju og hrapaði niður á bíl seðlabankastjóra sem lést samstundis.
    Forseti Íslands, miður sín eftir fráfall Seðlabankastjóra, ákvað að nú væri kominn tími til að hætta að ausa og yfirgefa dallinn og flúði land seinna um daginn. Fréttirnar bárust á ljóshraða til dönsku drottningarinnar sem brást við með snarræði og sölsaði undir sig Ísland á ný.
    Hennar fyrsta markmið var svo að framkvæma neyðaráætlun sem forfaðir hennar hafði áformað tveimur öldum áður. Að flytja Íslendinga frá Íslandi og koma þeim fyrir á jósku heiðunum. 

    Svo núna sitja Íslensk miðaldra hjón í ljótu eldhúsi, í ljótu húsi á ljótri jóskri heiði og konan segir; Elskan, mannstu þegar við áttum Bens?? Maðurinn svarar; Nei, eða jú alveg rétt, ég er ennþá að borga af honum.
    

» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 67355