Nú hringi ég í Jens..!!!
Könnun
Best af slæmu
Kýld/ur í magann
1 atkvæði

Kýld/ur í gagnaugað
0 atkvæði

Kýld/ur í klobbann
0 atkvæði

Kýld/ur í kobbann
1 atkvæði

Kýld/ur í nefið
0 atkvæði

Kýld/ur í eyrað
0 atkvæði

Kýld/ur í rasskinnina
3 atkvæði

Kýld/ur í handakrikann
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6
29.02.2008 14:35:09 / gráman

No way Jose

Ó vá... ég vill ekki nota ljót orð en mig dreymdi fucked up draum.... Samt sko góðan og skemmtilega að vissu leyti... Ég var mættur í senu hjá Grey's Anatomy....!

Ég var læknir.... Að sjálfsögðu og viti menn, ég var ekki Dr.McDreamy, ekki Dr.McSteamy heldur Dr.Love....! No djóking! Og þar sem ég gekk um hin notarlegu húsakyni Seatle Grace sópaði ég svoleiðis fótunum undan öllum dömunum sem soguðust að mér einsog ég væri gríðarlega sterkur segull.... En málið versnaði þegar píparinn minn hringdi í alvörunni og ég átti að fara í aðgerð... Á leiðinni reyndi ég nú að útskýra það fyrir fólkinu í kringum mig að ég væri ekkert læknir, læknagallinn væri bara til að þykjast og það ætti alls ekki að treysta mér fyrir að skera í einhvern..... Þýddi ekki baun! Ég var dreginn á apaeyrunum að skurðarborðinu þar sem að það var búið að ,,Preppa" allt! Sjúklingurinn uppá borði með mallann út í loftið og beið eftir að láta skera sig.
     Ég byrja að svitna! ,,Ókei!" hugsa ég ,,Ég hef séð þetta í sjónvarpinu nokkru sinnum, þetta getur ekki verið svona flókið!" Svo ég gríp í hnífinn og sting honum á bólakaf í magann á sjúklingnum einsog þegar maður sker seiga steik.... Ókei, þá fyrst hrekk ég í kút. Sjúklingurinn var ekkert sérstaklega ánægður með meðferðina heldur krossbregður og hrekkur uppúr djúpum svefni. Og viti menn, þar mætir Andrés Önd, honum hafði víst verið illt í maganum og var mættur í aðgerð, bara ekki til mín. Það besta var samt að hann talaði algerlega Andrésar Andar röddina og hljóp einsog skeppna um skurðstofuna og útaf einhverri ástæðu greip ég annan hníf og æddi á eftir honum. Veiðimanns eðlið braust fram í mér býst ég við og ef það hefði ekki verið fyrir tilstilli Dr.Burks og Dr.Shepards þá hefði ég náð honum og allir hefðu fengið önd. Pirraði mig samt að ég skildi ekki sjá Izzy Stevens nakta í þessum draumi.

Utan við góðan draum er gott að frétta, gaman í Barcelona og allt það. Fer að henda inn myndum eftir mánaðarmótin þaðan. Núna ætla ég að fara að lemja nágrannan minn sem ég er orðinn rúmlega pirraður á.

Adios.

-GÁG-

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 08:00:35 / gráman

Myndir

Það er komin hrúga af myndum inn á myndasíðuna mína, linkur á hana niður og til vinstri undir Myndir frá Danmörku.

kv. GÁG

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 21:39:44 / gráman

Þarna!

Fornfrægi fjandi....! Hef átt bágt síðustu daga... með að komast inn á þessa bloggsíðu druslu mína sem hefur séð sína dagana fegurri... Sextíu gestir á dag og ekki eitt einasta komment... Fólk fer huldnu höfði hér einsog á svo mörgum öðrum stöðum.... Gengur yfir landamærin án þess að framvísa vegabréfi... Slakt...!

Fyrir næstum því tveimur vikum kláraði ég fyrstu önnina í byggingarfræðing með láði... Hlaut þann heiður að kynna verkefnið sem við hópurinn höfum unnið að síðan í lok september. Allir fengu það sem þeir áttu skilið, ég fékk umsögnina ,,Bestur!", strákurinn að hann ætti nú að taka önnina aftur og stelpan í hópnum hallaði undir flatt og vonaði að hún fengi kennarana á sitt snæri með því að vera sæt og ljóshærð.... Tókst ekki hjá henni.... Niðurstaðan var að ég fékk góða umsögn og held áfram á næstu önn, hin tvö í hópnum fengu ekki sérstaka umsögn enda áttu þau mjög bágt með að mæta í skóla útaf því að það þurfti að fara á fimleikaæfingu, afmæli hjá ömmu í tvo daga akkúrat fyrir próf, fara í tvær vikur til USA og viku frí eftir á, viðra hundinn, sækja kærastan, fara út að borða með ömmu besta vinar kærastans.... Í raunininni var allt annað á forgangslistanum þeirra en skólinn....

 Síðustu tvær vikur hef ég annars bara slakað alvarlega á... Vaknað á morgnana bara til þess að njóta þess að vera í fríi.... Búinn að hjóla Horsens þvert og endilangt...

15.Mars flytjum við í þrisvar sinnum stærri íbúð.... Vimmelskaftið, 90fm íbúð sem liggur sirka 1km frá þeim stað sem við búum núna, en út úr gettóinu og inn á meðal eðlilegs fólks... Hlakkar agalega mikið til... Auka herbergi svo að endilega farið að bóka ykkur flug...

Svo var ég örugglega ekki búinn að minnast á það og ef ég var búinn að minnast á það þá er það bara í lagi..... Ég er að fara til Barcelona eftir hvað, tvær vikur... Takk fyrir... þá verður sko opnaður bjór, kannski tveir þrír.... kíkt á Eið Smára og félaga og svo drukkinn meiri bjór...

 Annars var það ekki meira

yfir og út...

bið að heilsa

-GÁG-


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 67355